Fara í efni

Yfirlit frétta

Björn Ingimarsson, sveitarstjóri.
18.10.21 Fréttir

Múlaþing hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar annað árið í röð

Múlaþing hlaut á dögunum viðurkenningu Jafnvægisvogar Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) en um er að ræða hreyfiaflsverkefni með það markmið að jafna stöðu kynja í efstu stjórnendalögum fyrirtækja, sveitarfélaga og stofnana og er hlutfallið 40/60 haft til hliðsjónar við matið. Eliza Reid kynnti viðurkenningahafa á ráðstefnu sem bar heitið Jafnrétti er ákvörðun í beinni útsendingu á RÚV. Þess má geta að Múlaþing hlaut einnig viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar fyrir árið 2020.
Búist við úrkomu aðfaranótt mánudags á Seyðisfirði
15.10.21 Fréttir

Búist við úrkomu aðfaranótt mánudags á Seyðisfirði

Af þessum sökum gæti komið til rýmingar í húsum undir Botnabrún á Seyðisfirði einkum í nágrenni við stóra skriðusárið. Ekki er orðið ljóst hversu viðamikil sú rýming yrði og verður tekin ákvörðum um framhaldið um miðjan dag næstkomandi sunnudag. Fólk er vinsamlegast beðið um að fylgjast með veðurspá og fréttatilkynningum á sunnudaginn.
Fuglateiknismiðjur á BRAS
14.10.21 Fréttir

Fuglateiknismiðjur á BRAS

BRAS- menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi er nú haldin í fjórða sinn og um allt Austurland. Í ár tengist þema BRAS náttúrunni og umhverfisvernd, en yfirskrift hátíðarinnar að þessu sinni er unga fólkið og umhverfið og byggir á 24.grein barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Íbúafundur á Seyðisfirði
13.10.21 Fréttir

Íbúafundur á Seyðisfirði

Íbúafundur vegna skriðumála á Seyðisfirði verður haldinn á morgun, fimmtudaginn 14. október kl. 16-18 í Félagsheimilinu Herðubreið – í bíósal.
Kumlateigur á Seyðisfirði
13.10.21 Fréttir

Kumlateigur á Seyðisfirði

Nú hafa fundist fjögur kuml á sama svæði við fornleifauppgröftinn í landi Fjarðar á Seyðisfirði þannig að þarna er kumlateigur. Uppgröftur næstu daga mun skera úr um hvort fleiri kuml séu á kumlateignum. Mannvistarleifar sem fundist hafa í uppgreftrinum eru miklu umfangsmeiri og fjölbreyttari en búast mátti við út frá forkönnunum í fyrra.
Kl. 17 : Rýmingu aflétt og hættustigi aflýst
12.10.21 Fréttir

Kl. 17 : Rýmingu aflétt og hættustigi aflýst

// eng // // pol // Mælt er með að umferð um göngustíga meðfram Búðará og annars staðar þar sem varnargarðar beina skriðustraumum verði áfram með aðgæslu. Hættustig almannavarna sem hefur verið í gildi færist nú á óvissustig. Engar hreyfingar hafa mælst í hlíðum ofan Seyðisfjarðar utan þeirra er mælst hafa í hryggnum. Áfram verði aðgæsla vegna umferðar á göngustígum meðfram Búðará og annars staðar þar sem varnargarðar beina skriðustraumum.
Kl. 20.30 : Útreikningar liggja fyrir og rýmingu aflétt að hluta
11.10.21 Fréttir

Kl. 20.30 : Útreikningar liggja fyrir og rýmingu aflétt að hluta

// eng // // pol // Engar hreyfingar hafa mælst í hlíðum ofan Seyðisfjarðar utan þeirra er mælst hafa í hryggnum. Öll óviðkomandi umferð um skriðusvæðið er óheimil. Umferð um göngustíga meðfram Búðará og annarsstaðar þar sem varnargarðar beina skriðustraumum verði áfram með aðgæslu.
Kl. 13 : Staðan óbreytt að mestu og greiningarniðurstöður væntanlegar
10.10.21 Fréttir

Kl. 13 : Staðan óbreytt að mestu og greiningarniðurstöður væntanlegar

Unnið er útreikningum á því hvort leiðigarðar og safnþró taki við því efni sem óstöðugt er í hlíðinni, jafnvel þó það fari allt í einu. Niðurstaðan ætti að liggja fyrir strax eftir helgi. Ákvörðun um afléttingu rýmingar verður þá tekin. Engar aðrar hreyfingar hafa mælst í hlíðum ofan Seyðisfjarðar.
Kl. 13.30 : Enn hreyfingar á hrygg í hlíðinni og lítilsháttar rigning í dag
09.10.21 Fréttir

Kl. 13.30 : Enn hreyfingar á hrygg í hlíðinni og lítilsháttar rigning í dag

// eng // // pol // Herðubreið verður opin í dag og á morgun frá klukkan 14 til 16 líkt og verið hefur. Öll velkomin. Ekki er gert ráð fyrir að íbúar geti snúið til síns heima fyrr en eftir helgi. Öll óviðkomandi umferð um skriðusvæðið er óheimil.
16. fundur Sveitarstjórnar Múlaþings
08.10.21 Fréttir

16. fundur Sveitarstjórnar Múlaþings

16. fundur Sveitarstjórnar Múlaþings verður haldinn í fundarsal sveitarstjórnar, Lyngási 12 Egilsstöðum, 13. október 2021 og hefst klukkan 14:00.
Getum við bætt efni þessarar síðu?