Fara í efni

Auglýsing um kjörskrár og kjörstaði

25.04.2022 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður Kosningar

Kjörskrár vegna sveitarstjórnar- og heimastjórnarkosninga sem fram fara laugardaginn 14. maí 2022, munu liggja frammi almenningi til sýnis á skrifstofum Múlaþings, á Borgarfirði, Djúpavogi, Egilsstöðum og Seyðisfirði, á opnunartíma hverrar skrifstofu, frá og með mánudeginum 25. apríl til og með föstudeginum 13. maí 2022. Kjörskránni er skipt upp á hvert hinna eldri sveitarfélaga, þannig að kjósendur eru skráðir á kjörskrá þar sem þeir áttu skráð lögheimili 38 dögum fyrir kjördag, þ.e. þann 6. apríl sl.

Athygli er vakin á því að kjósendur geta á einfaldan hátt kannað skráningu sína á kjörskrá inni á vef Þjóðskrár Íslands: https://skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/hvar-a-eg-ad-kjosa/

Óskum um leiðréttingar á kjörskrá skal komið á framfæri við viðkomandi sveitarstjórnarskrifstofu eins fljótt og unnt er. Tekið skal fram að óheimilt er að breyta kjörskrá ef tilkynning um nýtt lögheimili hafði ekki borist Þjóðskrá fyrir 6. apríl 2022.

Kjörgengir til heimastjórnar eru allir íbúar á kjörskrá í Múlaþingi, hver skv. kjörskrá í sinni „heimasveit“, þ.e í hverju hinna eldri sveitarfélaga. Hver kjósandi kýs einn aðalmann í heimastjórn af kjörskrá í sinni „heimasveit“. Kjósandi skrifar á sérstakan kjörseðil fullt nafn og heimilisfang þess sem hann kýs. Til þess að fyrirbyggja tafir við atkvæðagreiðslu eru kjósendur hvattir til þess að kynna sér, áður en komið er á kjörstað, hvert er heimilisfang þess er hann hyggst kjósa í heimastjórn. Á heimasíðu Múlaþings er að finna nánari upplýsingar um heimastjórnir og sýnishorn af kjörseðli til heimastjórnar auk annars efnis er kosningarnar varðar.

Kjörstaðir við sveitarstjórnar- og heimastjórnarkosningarnar þann 14. maí 2022 verða sem hér segir:
Borgarfjörður eystri: Hreppstofan Borgarfirði. Frá klukkan 09:00 til klukkan 17:00
Djúpivogur: Tryggvabúð Djúpavogi. Frá klukkan 10:00 til klukkan 18:00
Fljótsdalshérað: Menntaskólinn á Egilstöðum. Frá klukkan 09:00 til klukkan 22:00
Seyðisfjörður: Íþróttamiðstöðin á Seyðisfirði. Frá klukkan 10:00 til klukkan 22:00

Kjördeildir við sveitarstjórnarkosningarnar verða fimm talsins, tvær á Egilsstöðum vegna Fljótsdalshéraðs en ein í hverju hinna þriggja sveitarfélaganna. Kjördeildirnar á Fljótsdalshéraði skiptast þannig: Í kjördeild nr. 1 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur, hverra nöfn byrja á bókstafnum A til og með bókstafnum R. Í kjördeild 2 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur hverra nöfn byrja á bókstafnum S – Ö, íbúar í Fellabæ, Eiðum og Hallormsstað og íbúar í dreifbýli á Fljótsdalshéraði.

Kjósendur eru minntir á að hafa persónuskilríki sín tiltæk á kjörstað.

Á kjördag, meðan atkvæðagreiðsla stendur yfir, mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur sitt á kjörstað í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Símanúmer yfirkjörstjórnar á kjördag eru 895-9972 (Björn), 665-8858 (Hlynur), 864-4950 (Þórunn), tölvupóstfang til notkunar á kjördag: kjorstjorn@me.is

Talning atkvæða fer fram í Menntaskólanum á Egilsstöðum og hefst að kjörfundi loknum.

Yfirkjörstjórn í Múlaþingi, 25. apríl 2022.
Björn Aðalsteinsson, Hlynur Jónsson, Þórunn Hálfdánardóttir

Auglýsing um kjörskrár og kjörstaði
Getum við bætt efni þessarar síðu?