Fara í efni

Samráðsfundur með íbúum Austurlands um samgöngur, sveitarstjórnarmál og húsnæðis- og skipulagsmál

14.10.2022 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Í október býður innviðaráðuneytið, í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga, íbúum í öllum landshlutum til opins samráðs á fjarfundum í október undir yfirskriftinni Vörðum leiðina saman.

Fundur fyrir íbúa Austurlands verður haldinn þriðjudaginn 18. október kl. 15-17.

Tilgangur samráðsfundanna er að gefa íbúum og sveitarstjórnarfólki um land allt tækifæri til að hafa áhrif á stefnumótun í nokkrum helstu málaflokkum ráðuneytisins. Á fjarfundunum verður kastljósinu beint að framtíðaráskorunum í málaflokkunum. Meginviðfangsefni fundanna verða umræður um stefnumótun í samgöngum, sveitarstjórnarmálum og húsnæðis- og skipulagsmálum. Einnig verður fjallað um nýsamþykkta byggðaáætlun.

Íbúar eru hvattir til að taka þátt í fjarfundinum sem haldinn er í gegnum fjarfundarbúnaðinn Teams. Hægt er að skrá sig á vef Stjórnarráðsins. Þátttakendur fá boð í tölvupósti til að tengja sig á fundina. Skráningu lýkur daginn fyrir fundinn, mánudaginn 17. október.

Samráðsfundur með íbúum Austurlands um samgöngur, sveitarstjórnarmál og húsnæðis- og skipulagsmál
Getum við bætt efni þessarar síðu?