Í ár eru 50 ár liðin frá því konur lögðu niður störf með eftirminnilegum hætti þann 24. október 1975 í þeim tilgangi að mótmæla margvíslegri mismunun gegn konum á vinnumarkaði og vekja athygli á framlagi kvenna til samfélagsins. Tímamótunum er fagnað með margvíslegum hætti um allt land undir yfirskriftinni Kvennaár 2025 en hápunktur hátíðarhaldanna verður 24. október næstkomandi.
Í Múlaþingi verður meðal annars kafað í textagerð tónlistarkvenna og sögur kvenna af erlendum uppruna.
„Ég vild´ég væri Pamela í Dallas“
Á Bókasafni Héraðsbúa á Egilsstöðum verður kafað í textagerð austfirskra tónlistarkvenna á viðburði sem ber yfirskriftina „Ég vild´ég væri Pamela í Dallas“.
Þar koma fram tónlistarkonurnar Gréta Sigurjónsdóttir úr hljómsveitinni Dúkkulísunum, Halla Kristjánsdóttir úr hljómsveitinni Without the balls og Ína Berglind Guðmundsdóttir tónlistarkona og nemi í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Flutt verða lög frá ýmsum tímabilum, textarnir verða síðan lesnir upp til að skoða hvort finna megi í þeim skírskotanir í samtímann, tíðarandann og kvennabaráttuna.
Viðburðurinn er styrktur af Bókasafnasjóði og er hluti af verkefninu Læsi á stöðu og baráttu kvenna en almenningsbókasöfn um land allt sameina krafta sína undir merkjum verkefnisins í tilefni af Kvennaárinu 2025.
Með þessu samstarfsverkefni vilja almenningsbókasöfn styrkja tengslin við einstaklinga, félagasamtök eða stofnanir sem vinna að jafnréttismálum með einum eða öðrum hætti í sínu nærsamfélagi og skapa saman áhugaverða dagskrá í samfélagsrýmum bókasafnanna.
Viðburðurinn fer fram sunnudaginn 19. október og hefst kl. 15:00. Aðgangur er ókeypis.
Sæhjarta, sögur umbreytinga
Sæhjarta, sögur umbreytinga er nýr einleikur Tess Rivarola í leikstjórn Gretu Clough. Verkið er blanda af sagnalist, brúðuleikhúsi og samfélagslegri sýn og er innblásið af sögum kvenna af erlendum uppruna sem búa á Austurlandi. Verkið verður sýnt á Egilsstöðum og Seyðisfirði.
Verkefnið hefur farið fram á Seyðisfirði og Egilsstöðum síðan í febrúar 2025. Alls 25 konur sem búa á fimm mismunandi stöðum á Austurlandi og koma frá 19 mismunandi löndum taka þátt í verkefninu en í því voru myndaðir söguhópar þar sem áhersla var lögð á sögur og raddir innflytjendakvenna. Aðferðafræðin var þróuð í samstarfi Margaretar Johnson og Tess Rivarola, innblásin af kvennahringjum WOMEN Iceland ásamt verkfærum úr sálleiklist (psychodrama), tjáningarformum sem fara út fyrir tungumálið og sögum sem tengjast hlutum.
Upp úr vinnu kvennanna hefur nú orðið til sýning sem byggir á sagnalist og brúðuleikhúsi þar sem keltnesk og norræn þjóðsaga um „selkonuna“ (selkie woman) er notuð sem líking fyrir reynslu innflytjendakvenna. Sýningin er innblásin af þeim sögum sem komu fram í söguhópunum. Annars vegar er um að ræða einleik Tess Rivarola í leikstjórn Gretu Clough (Handbendi Studio) og hins vegar sameiginlega innsetningu eftir þátttakendurna í söguhópunum.
Verkið verður sýnt í Sláturhúsinu menningarmiðstöð á Egilsstöðum föstudaginn 24. október kl. 19:30 og í Herðubreið á Seyðisfirði laugardaginn 25. október kl. 19:30. Aðgangur er ókeypis.
Verkefnið er samstarfsverkefni Tess Rivarola, Margaretar Johnson frá WOMEN Iceland, Sláturhússins menningarmiðstöðvar, Herðubreiðar, Handbendi Studio (Hvammstanga) og Tehússins. Uppbyggingarsjóður Austurlands styrkti verkefnið.