Tónleikar í Bragganum við Sláturhúsið á Egilstöðum, þriðjudaginn 16. júní kl 19:30. FRÍTT INN
Fram koma hljómsveitirnar:
Espolín
Ovium
Dóra & Döðlurnar
Dóra & Döðlurnar eru stelpuhljómsveit úr Reykjavík sem spilar eigin lög á íslensku í popp rokk stig. Lög daðlanna fjalla iðulega um ástina og allt tengt því að vera unglingstelpa, meðal vinsælustu laga Dóru & Daðlanna eru Gríptu mig, Gatnamót og Leyndarmál. Þetta eru sex stelpur á tvítugsaldri sem hafa komið sér fram í sviðsljósið meðal annars á Heima í hafnafirði, Söngkeppni sjónvarpsins, Aðventugleði rásar 2 og Menningarnótt svo eitthvað sé nefnt.
Ovium eru heimamennirnir á Egilstöðum og koma eldheitir úr Músíktilraunum, best lýst sem "landsbyggðar bárujárni" (takk Arnar Eggert) mæta og spila sitt rokk fyrir fólkið sem vill heyra það, og alla hina líka!
Espolín er ábreiðuband með gjeggjað sound! Þau ferðast með Döðlunum hringinn um landið í sumar. Þetta er blandað band af krökkum á menntaskólaaldri sem hafa verið að spila saman í fjölmörg ár og því eru þau fáranlega þétt!
Ekki láta þig vanta á þessa gjeggjuðu tónlistarveislu