Fara í efni

Dagar myrkurs

Hátíðin Dagar myrkurs verður haldin á Austurlandi 27. október – 31. október 2021 og er þetta í 22. skipti sem hátíðin er haldin. Dagar myrkurs er sameiginleg byggðahátíð allra íbúa á Austurlandi sem hefur það að markmiði að leggja áherslu á viðburði sem hvetja til samveru íbúa og að við bjóðum hvert öðru uppá skemmtilega afþreyingu í skammdeginu. Gestir eru að sjálfsögðu velkomnir til að njóta með okkur. Hvatt er til þess að íbúar, félagasamtök og fyrirtæki búi til viðburði sem lýsa upp myrkrið, viðburði sem fela í sér rómatík, drauga, fornar hefðir í bland við nýjar.

Hátíðin er í grunninn menningarhátíð og hafa fjölbreyttir menningarviðburðir verið í boði á þessum tíma ársins, allt frá árinu 2000.

Búningdagur
Föstudaginn 29. október höfum við búningadag um allt Austurland. Íbúar, fyrirtæki og stofnanir eru hvött til að vekja athygli og taka þátt.

Ljósmyndasamkeppni

Ár hvert er haldin ljósmyndasamkeppni sem nú hefur fest sig í sessi. Öllum er velkomið að taka þátt, eina skilyrðið er að þemað „Myrkrið“ njóti sín á myndunum sem sendar eru inn. Veitt eru verðlaun uppá 50.000.- fyrir fyrsta sætið og Austurbrú áskilur sér rétt til að nota innsendar myndir til að kynna hátíðina. Myndir skal senda inná netfangið dagarmyrkurs@austurbru.is og er síðasti skiladagur 2. nóvember nk.

Samkeppni um best skreytta gluggann

Í ár ætlum við að bjóða íbúum að senda inn mynd af glugga sem þeir skreyta heima hjá sér og/eða í vinnunni. Best skreytti glugginn verður valinn og í verðlaun eru gjafabréf af svæðinu. Myndir skal senda inná netfangið dagarmyrkurs@austurbru.is og er síðasti skiladagur 2. nóvember nk.

Frekari upplýsingar veitir Halldóra Dröfn, verkefnastjóri á dora@austurbru.is

Getum við bætt efni þessarar síðu?