Fara í efni

Frisbígolfnámskeið í Selskógi

Selskógur 11. júní 2026 kl. 17:00
Frisbígolfnámskeið verður haldið í Selskógi á fimmtudaginn næsktomandi. Klukkan 17:00 bjóðum við fjölskyldur, börn og byrjendur velkomna og förum í gegnum grundvallaratriðin um köst, diskana og íþróttina. Förums svo í einhverja leiki og endum svo á grilli um kl. 18:30. Áhugasömum og lengra komnum er einnig boðið að koma í grillið og eftir grill verður stutt námsekið fyrir þann hóp og spilum svo nokkrar holur saman á nýja vellinum í Selskógi.

Byrjendanámskeið 17:00-18:30
Grill fyrir alla 18:30-19:00
Námskeið fyrir lengra komna 19:00-20:00+
Mæting við leiksvæðið í Vémörk

Vaskur styrkir námskeiðið og gefur þáttakendum 15% afslátt af frisbígolfvörum.
UMF Þristur skaffar körfur og lánsdiska fyrir alla þáttakendur,

Kennarar eru:
Glúmur Björnsson - vallastjóri frisbígolfvallarins í Selskógi og
Rafael Rökkvi Freysson fyrrum íslandsmeistari í frisbígolfi.
Getum við bætt efni þessarar síðu?