Fara í efni

Prinsinn

Prinsinn er alveg örugglega langbesta sjoppan undir Jökli, og það er þar sem hlutirnir gerast, að nóttu sem degi – sérstaklega ef maður vinnur í sjoppunni og er með lyklana!

Í verkinu kynnumst við manni á fertugsaldri sem bíður í ofvæni eftir því að barn hans komi í heiminn. Eftirvænting og kvíði takast á í huga hans, og atburðir sem áttu sér stað tveimur áratugum fyrr fara að sækja á hann: 17 ára menntaskólastrákur er staddur á Laugaveginum ásamt vini sínum þegar síminn hringir. Sæta stelpan sem vinnur á Prinsinum er í símanum. „Ég er ólétt. Þú ert að verða pabbi.“ Hvernig getur maður orðið pabbi sautján ára, og mamman bara sextán? Er framtíðin í rúst?

Hjartnæmt og fyndið nýtt íslenskt leikrit, sem talar beint til okkar.

Höfundar María Reyndal og Kári Viðarsson Leikstjóri María Reyndal Leikmynd Guðný Hrund Sigurðardóttir og Egill Ingibergsson Búningar Guðný Hrund Sigurðardóttir Tónlist Úlfur Eldjárn Hljóðhönnun Úlfur Eldjárn Ásta Jónína Arnardóttir Lýsing Jóhann Friðrik Ágústsson

Miðasala á Tix

Getum við bætt efni þessarar síðu?