Fara í efni

SKAFTFELL - PREFAB / FORSMÍÐ

Opnunartimar: Mán – fös, kl. 12:00 - 18:00. Lau – sun, kl. 15:00 – 18:00
Sýningarstjóri: Guja Dögg Hauksdóttir, Ráðgjafi: Gavin Morrison

Einingahús og listræn tjáning frá einum aldamótum til annarra

Einingahús, þ.e. byggingar úr einingum sem eru forsmíðaðar í verksmiðju og svo fluttar og settar saman á endanlegum stað eru grundvallandi fyrir þróun byggðar í Seyðisfjarðarkaupstað. Á sýningunni PREFAB / FORSMÍÐ verða tekin fyrir þrjú dæmi um forsmíðuð einingahús með það að markmiði að vekja athygli á áhrif byggingarlistar á líf okkar, og þá sérstaklega hvaða hlut einingahús geta átt í framtíð manngerðs umhverfis.

Einingahúsin sem fjallað er um á sýningunni eru frá seinni hluta 19. aldar til okkar daga. Hvert verk er einkennandi fyrir fagurfræðilega nálgun hvers tíma. Elsta verkið er Stefánshús, svokallað katalóghús í sveitserstíl, íbúðarhús sem hannað var og smíðað í verksmiðju í Noregi, tekið niður og sett upp aftur á Seyðisfirði 1899. Annað verkið er Le Cabanon, sumarbústaður frá árinu 1951 sem módernista arkitektinn Le Corbusier (1887-1965) hannaði fyrir sjálfan sig. Bústaðurinn var byggður á smíðaverkstæði á Korsíku og var fluttur þaðan í einingum sem settar voru upp á lóðinni að Roquebrune-Cap-Martin á Cote-d’Azure í Frakklandi. Þriðja verkið er Nest (Hreiður) eftir Rintala Eggertsson arkitekta, sem er stofnsett í Osló af þeim Sami Rintala frá Finnlandi og Degi Eggertssyni frá Íslandi. Hreiður er eins konar kerfi húshluta af forsmíðuðum einingum sem þróað var árið 2016 til að koma til móts við vaxandi straum flóttamanna með neyðarbústöðum af almennilegum gæðum fyrir fjölskyldur í hörmulegum aðstæðum.

Áherslan á fagurfræðilegan þátt viðfangsefnisins er undirstrikuð með samspili þrívíðu innsetninganna við nýja myndlist eftir þrjá samtíma listamenn. Það eru María Sjöfn Dupuis Davíðsdóttir með Vatnaverk (2020), Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir með Mín hönd, þín hönd (2019), og Arnór Kári Egilsson með Glit (2020).

Getum við bætt efni þessarar síðu?