Fara í efni

Þróun og framtíðarhorfur íbúðamarkaðar og byggingarmála á Austurlandi

Austurbrú, Búðareyri 1, Reyðarfirði 20. nóvember 2025 kl. 11:45-13:30

Fimmtudaginn 20. nóvember verður haldinn opinn fundur um þróun og framtíðarhorfur íbúðamarkaðar á Austurlandi. Fundurinn verður haldinn í húsnæði Austurbrúar, Búðareyri 1 á Reyðarfirði, kl. 11:45 og er opinn öllum. Að fundinum standa HMS, Tryggð byggð og Austurbrú.

Á fundinum verður fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði og stafræn byggingarleyfi.

Dagskrá

  • Staðan í Fjarðabyggð
    Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar
  • Staða íbúðauppbyggingar
    Jón Örn Gunnarsson, sérfræðingur húsnæðisáætlana hjá HMS
  • Stafræn byggingarleyfi
    Dagný Geirdal, verkefnastjóri Mannvirkjaskrár hjá HMS

Fundarstjóri verður Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.

Húsið opnar kl. 11:45 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn.

Við bjóðum öll velkomin á fundinn og hlökkum til að sjá ykkur.

Getum við bætt efni þessarar síðu?