Fara í efni

Reglur Múlaþings um garðslátt fyrir eldri borgara og öryrkja

Reglur Múlaþings um garðslátt fyrir eldri borgara og öryrkja sumarið 2022

Eldri borgarar og öryrkjar í Múlaþingi geta átt rétt á allt að þremur gjaldfrjálsum garðsláttum yfir sumarið ef þeir uppfylla eftirtalin skilyrði:

  1. Umsækjandi eigi lögheimili í sveitarfélaginu Múlaþingi.
  2. Umsækjandi hafi ekki hærri tekjur en segir til um í flokki tvö í gjaldskrá stuðningsþjónustu Múlaþings: Fyrir árið 2022 er það kr. 527.880 á mánuði fyrir einstakling og kr. 844.608 á mánuði fyrir hjón.
  3. Lausafjáreign umsækjanda fari ekki yfir viðmiðunarfjárhæð lausafjáreigna skv. sömu gjaldskrá. Fyrir árið 2022 er viðmiðunarfjárhæðin 2.946.014 kr.
  4. Umsækjandi geti ekki sinnt garðslætti. Hægt er að óska eftir læknisvottorði því til staðfestingar.
  5. Þjónustan er að jafnaði ekki veitt ef aðrir heimilismenn, 18 ára og eldri, geta sinnt henni.

 

Samþykkt í sveitarstjórn Múlaþings 11. maí 2022.

Síðast uppfært 27. apríl 2023
Getum við bætt efni þessarar síðu?