Fara í efni

Frístundabyggð við Eiða

22.11.2023

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings samþykkti á fundi 20. nóvember 2023 að kynna vinnslutillögu fyrirhugaðra breytinga á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 vegna frístundabyggðar við Eiða í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samhliða er kynnt vinnslutillaga nýs deiliskipulags svæðisins í samræmi við 3. mgr. sömu laga.

Breytingin felur í sér að landnotkun á um 53 ha svæði er breytt úr opnu svæði til sérstakra nota yfir í frístundabyggð þar sem gert verður ráð fyrir allt að 50 lóðum fyrir frístundahús til einkanota. Nánari skilmálar og hönnun svæðisins er sett fram í deiliskipulagi.

Ofangreindar skipulagstillögur eru aðgengilegar í gegnum vef Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir málsnúmerum 902/2023 og 903/2023.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna til og með 19. desember 2023. Tekið er á móti athugasemdum á rafrænan hátt í gegnum Skipulagsgátt. Hægt er að óska eftir nánari leiðbeiningum gegnum netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is

Smelltu hér til að skoða gögn og skila inn athugasemd við aðalskipulagsbreytingu

Smelltu hér til að skoða gögn og skila inn athugasemd við deiliskipulagsbreytingu

Umsagnir um skipulagsmál teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum sveitarfélagsins og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigurður Jónsson

Getum við bætt efni þessarar síðu?