Fara í efni

Innritun í grunnskóla Múlaþings 2024

20.03.2024 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Nemendur í 1. bekk

Foreldrar barna í Múlaþingi sem fædd eru árið 2018 og eru að hefja grunnskólagöngu í haust eru beðnir um að ganga frá skráningu barna sinna í síðasta lagi 30. apríl næstkomandi. Innritun í grunnskóla fer fram rafrænt á heimasíðu sveitarfélagsins.

 

Breytingar á skólavist

Ef óskað er eftir breytingum á grunnskólavist nemenda í Múlaþingi, skal sækja um það rafrænt á heimasíðu sveitarfélagsins í síðasta lagi 30. apríl næstkomandi.

Nánari upplýsingar veitir grunnskólafulltrúi í síma 4700 700 eða á netfanginu stefania.malen.stefansdottir@mulathing.is.

Innritun í grunnskóla Múlaþings 2024
Getum við bætt efni þessarar síðu?