Fara í efni

Aðalfundur Björgunarsveitarinnar Sveinunga 2026

Heiðin, Borgarfirði eystri 31. mars 2026 kl. 20:00

AÐALFUNDUR SVEINUNGA 2026
verður haldinn á Heiðinni þriðjudaginn 31. mars kl. 20:00.

Kaffi og meðlæti í boði ásamt hefðbundnum aðalfundarstörfum.

Öll sem eru áhugasöm um að ganga í sveitina eru hvött til að mæta.

DAGSKRÁ AÐALFUNDAR

  1. Formaður setur fund
  2. Inntaka nýrra félaga
  3. Skýrsla stjórnar og ársreikningur
  4. Skýrslur flokka og nefnda
  5. Breytingar á lögum og reglum
  6. Ákvörðun árgjalds
  7. Kosning stjórnar
  8. Kosning í önnur embætti
  9. Önnur mál
    • Fyrirhuguð húsnæðiskaup
    • Dyrfjallahlaup
    • Bræðslugæsla
    • Skilagjald/endurvinnsla
    • Námskeið - hvað er í boði og hvað viljum við?

Öllum félögum er velkomið að bera upp erindi á fundi undir liðnum önnur mál svo lengi sem þau varða starf sveitarinnar.

Eftirfarandi breyting á reglugerð liggur fyrir:

Ný grein
1.3 Á aðalfundi skal ákveðið hvort þörf sé á að Sveitaráð, Bækistöðvarflokkur, Flugeldanefnd og Laganefnd séu starfrækt og gilda þá reglugerðir hverju sinni.

Eftirfarandi breyting á lögum liggur fyrir:

15.5.2. Stjórn sveitarinnar skiptir með sér verkum að aðalfundi loknum.
Breytist í
15.5.2. Stjórn sveitarinnar hefur störf og skiptir með sér verkum að aðalfundi loknum.

Getum við bætt efni þessarar síðu?