Fara í efni

Hagnýtar upplýsingar leikskóla

Hér er að finna samantekt upplýsinga um leikskóla í sveitarfélaginu.

Nánar um útfærslur er í:

Að sækja um leikskóla

  • Hægt að sækja um leikskólapláss frá fæðingu barns eða um leið og kennitala þess hefur verið skráð.
  • Sótt er um í leikskólakerfi Völu fyrir 31. mars ár hvert til að fá úthlutað plássi á næsta skólaári.
  • Sækja má um fyrir barn með lögheimili utan Múlaþings, en lögheimili þarf að vera í sveitarfélaginu þegar leikskóladvöl hefst.

Úthlutun leikskólaplássa

  • Að jafnaði eru leikskólapláss í boði fyrir börn sem náð hafa eins árs aldri við upphaf skólaárs leikskólans 1. september og í ársbyrjun ef laust er pláss. 
  • Börn einstæðra foreldra, starfsfólks leikskóla Múlaþings og börn með sérstakar stuðningsþarfir hafa forgang í leikskóla, sjá nánar reglur um innritun í leikskóla Múlaþings
  • Börn eru innrituð í leikskóla eftir aldri þannig að eldri börn ganga fyrir þeim yngri.
  • Aðalúthlutun leikskólaplássa fer fram í apríl og þá eru börn innrituð í stað þeirra sem eru að útskrifast að vori.
  • Leikskólaplássum er einnig úthlutað á haustin og eftir atvikum allt árið.
  • Foreldrar sem þiggja boð um leikskólapláss skuldbinda sig til að virða leikskólatíma barns og greiða gjöld fyrir vistun og fæði.

Flutningur á milli leikskóla og breytingar 

  • Sótt er um flutningi milli leikskóla í leikskólakerfi Völu, umsóknir þurfa að berast fyrir 31. mars ár hvert.
  • Óskir um breytingar á leikskólasamningi eða fæðiskaupum þarf að sækja um með tveggja vikna fyrirvara fyrir 1. eða 15. hvers mánaðar hjá leikskólastjóra eða rafrænt á umsóknarvef.

Dvalartími

  • Almennur opnunartími er kl. 7:45–16:15
  • Glaumbær lokar kl. 14:00 á föstudögum.
  • Brúarás opnunartími er kl. 8:40–15:10 mánudaga-fimmtudaga, og kl. 8:40 – 14:10 á föstudögum. 

Foreldrar eru beðnir að trufla sem minnst á matar- og hvíldartíma kl. 11–13 .

Styttri dvalartími fyrir yngstu börnin

Börn 2 ára og yngri hafa dvalartíma frá kl. 08:00–15:00.

Hægt er að bæta við 15 mínútum við upphafi eða lok dags eftir aðstæðum í leikskólanum.

Breytilegur dvalartími

Hægt er að sníða leikskóladvöl barna að sínum þörfum og sækja um breytilegan dvalartíma. Dvöl hvern dag er að lágmarki er 4 stundir en 8,5 stundir að hámarki, hægt er að velja hvaða daga barnið sækir leikskóla.

Leikskólagjöld

Múlaþing greiðir stærsta hluta kostnaðar við dvöl barna í leikskólum sveitarfélagsins og foreldrar greiða hluta í formi leikskólagjalda. 

Gjaldskráin er tvískipt, almennt gjald fyrir hjón og sambúðarfólk og svo forgangsgjald fyrir þau sem hafa rétt á því. 

  • Leikskólagjöld eru greidd fyrir fram, gjalddagi er 1. hvers mánaðar og eindagi 16. hvers mánaðar.
  • Greitt er fyrir umsamin leikskólatíma barns og fæði.
  • Innheimt er sérstakt gjald virði foreldrar ekki umsamin leikskólatíma.

Niðurfelling kostnaðar

  • Hægt er að fá fæðiskostnað niðurfelldan ef nemandi er fjarverandi 10 skóladaga samfellt, sækja þarf um það fyrir fram.
  • Heimilt er að fella niður fæðiskostnað vegna langtíma veikinda.
  • Foreldrar geta sótt um gjaldfrjálst leyfi, þegar grunnskólinn er í leyfi (jólafríi, páskafrí og vetrarfrí) 
  • Leikskólagjöld eru ekki innheimt vegna sumarleyfa sjá nánar í reglum leikskóla.

Leikskólakerfið Vala

Leikskólakerfið Vala er notað fyrir leikskóla Múlaþings, það er aðgengilegt í vafra og í appi á snjalltækjum. Appið er á íslensku, ensku og pólsku. Foreldrar eru hvattir til að sækja sér appið.

Í Völu hafa foreldrar aðgang að:

  • Leið til að tilkynna forföll og senda skilaboð.
  • Upplýsingum um skólastarfið.
  • Tilkynningum og fréttum frá leikskólanum.
  • Dagskrá dags barn síns.
  • Upplýsingum um svefn, mat og hvernig dagurinn hefur gengið hjá sínu barni.
  • Umsókn um leikskólavist, breytingar og flutning.

Appiði í Google play   |    Appiði í App store  |   Vala.is

Upphaf leikskólagöngu og aðlögun

Í upphafi skólagöngu eru foreldrar boðaðir í viðtal þar sem:

  • Farið er yfir fyrirkomulag aðlögunar.
  • Beðið er um leyfi fyrir miðlun upplýsinga á milli skólastiga eða leikskóla.
  • Beðið er um leyfi fyrir myndatökum og myndbirtinum.
  • Spurningum foreldra er svarað.

Aðlögun

Markmið aðlögunar er að barn upplifi öryggi í nýju umhverfi, kynnist starfsfólki og hinum börnunum svo það geti notið leikskóladvalarinnar. Jafnframt er aðlögun tími fyrri foreldra og starfsfólk að kynnast og byggja upp gott samstarf milli heimilis og skóla.

Öll börn fara í aðlögun líka þau sem hafa áður verið í leikskóla, barn þarf alltaf tíma til að aðlagast nýjum umhverfi og nýju fólki

Aðferðir aðlögunar eru mismunandi eftir skólum og fer lengd aðlögunar eftir þörfum hvers barns og reglum leikskólans. Aðlögunarferlið í heild sinni getur tekið allt að 4-6 vikur. 

Heilsa

Algengt er að börn fái fjölmargar pestir fyrsta árið í leikskóla.

Starfsdagar og starfsmannafundir

  • Starfsdagar leikskólanna eru sex og er leikskólinn lokaður þessa daga. Skólastjórnendur leik- og grunnskóla, í hverjum skólakjarna fyrir sig, samræma þessa daga eins og kostur er.
  • Starfsmannafundir eru 10 sinnum á ári, tvo tíma í senn ýmist á milli kl. 8-10 eða kl. 14-16 og þá er leikskólinn lokaður. 
  • Starfsdagar og starfsmannafundir eru skráðir á skóladagatal skólanna. 

Sumar- og jólafrí

  • Leikskólarnir eru lokaðir í 5 vikur í júlí fram yfir verslunarmannahelgi, vegna sumarleyfa. Leikskólinn í Brúarási fylgir skóladagatali grunnskólans og lokar í samræmi við það.
  • Leikskólar Múlaþings eru lokaðir á aðfangadag, gamlársdag og aðra virka daga á milli jóla og nýárs en gjöld eru felld niður þessa daga.

  • Foreldrar geta óskað eftir vistun fyrir börn sín í fimmtu sumarfrís og virka daga á milli jóla og nýárs. Lágmarksfjöldi barna þarf að nást.
  • Leikskólagjöld falla niður í sumar- og jólalokun leikskólanna.

Veikindi og frí

  • Fyrir barn sem er veikt eða í fríi er látið vita í gegnum Völu eða láta vita með öðrum hætti.
  • Mælt er með að halda barni hitalausu heima einn dag eftir veikindi.

Komur og brottfarir

  • Mikilvægt er að tilkynna þegar barn mætir í leikskólann og þegar það er sótt.
  • Aðeins skráðir aðilar geta sótt barn. Hægt er að breyta þessari skráningu með því að tala við deildarstjóra.
  • Systkini þurfa að vera orðin 12 ára eða eldri til að mega sækja.

Fatnaður

Börnin fara út á hverjum degi, því er mikilvægt að huga vel að fötum og halda góðum samskiptum við starfsfólk deilda um ef eitthvað vantar.

Nauðsynlegt er eftir atvikum 

  • Að hafa aukaföt, útiföt og skó sem henta veðri.
  • Að hafa sólaráburð, bleyjur, blautþurrkur og fleira eftir atvikum.
  • Að merkja föt vel.
  • Taka blaut og skítug föt heim í lok dags.
  • Taka allt heim á föstudögum sem tilheyrir barninu. 

Matur

Börn fá morgunmat, hádegismat og síðdegishressingu í leikskólanum.

Ef barn getur ekki borðað einhvern mat vegna mataróþols, ofnæmis eða af trúarlegum ástæðum er mikilvægt að upplýsa leikskólastarfsfólk um það.

Ef um ofnæmi eða óþol er að ræða þarf að koma með læknisvottorð því til staðfestingar, til að fá sérfæði.

Farsæld og stuðningur

Aðeins um farsæld Setja tengil á farsældarsíðuna og líka skólaþjónustusíðuna.

Þrepaskiptur stuðningur

  • Allir leikskólar eru á fyrsta stigi farsældar.
  • Unnið að nýju verklagi þar sem þrepaskiptur stuðningur er innleiddur í alla leikskóla. 

Stoðþjónusta

  • Markmiðið með stoðþjónustu er að tryggja að börn njóti leikskóladvalarinnar og fái fjölbreytilega kennslu sem taki mið af þörfum þess.
  • Leikskólar bera ábyrgð á að börn sem þess þurfa hljóti stoðþjónustu.
  • Sérkennslustjóri er faglegur umsjónarmaður stoðþjónustu skólans, hann skipuleggur viðbótarkennslu og heldur utan þau úrræði sem börnin í skólanum njóta.
  • Börn geta einnig fengið stuðning utan leikskóla, til dæmis iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun eða talþjálfun.

Skóla- og frístundaþjónusta

  • Talmeinafræðingur sem sinnir greiningu og ráðgjöf til foreldra og kennara.
  • Sálfræðingar sem sinna frumgreiningu á þroska barna og ef grunur vaknar um einhverfu.
  • Leikskólafulltrúi sem sinnir ráðgjöf til stjórnenda, kennara og foreldra allt eftir þörfum.
  • Tilvísanir vegna þjónustu við einstaka börn eru gerðar af sérkennslustjórum og foreldrar undirrita þær rafrænt.

Skólahjúkrunarfræðingur

Skólahjúkrunarfræðingur er starfandi við leikskólanna. Hlutverk skólahjúkrunarfræðings:

  • Situr í nemendaverndarráði þar sem hlutverkið er að leita lausna og leiðbeina foreldrum og stoðþjónustu um úrræði innan heilsugæslunnar sé þess þörf.
  • Sinnir 2 ½ árs og 4 ára heilsufarsskoðunum barna á heilsugæslustöð.
  • Leggur fyrir Brigance þroskapróf ef ástæða þykir.
  • Tengiliður farsældar hjá HSA fyrir börn áður en þau byrja í leikskóla og fyrir þau börn sem ekki eru í leikskóla.

Lög og stefnur

Síðast uppfært 04. febrúar 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?