Fara í efni

Heimastjórn Djúpavogs

Heimastjórn Djúpavogs vinnur að því að tryggja áhrif og þátttöku íbúa í málefnum sem varða nærumhverfi og samfélagið á Djúpavogi. Heimastjórnin gegnir mikilvægu hlutverki sem tengiliður milli íbúa og sveitarstjórnar og getur komið málefnum og áherslum heimamanna á dagskrá sveitarfélagsins.

Helstu verkefni heimastjórnar eru meðal annars að:

  • fjalla um skipulags- og umhverfismál á svæðinu
  • sinna málefnum sem tengjast menningu og samfélagslífi
  • fjalla um landbúnaðar- og atvinnumál
  • veita umsagnir um staðbundin málefni og leyfisveitingar
  • koma á framfæri sjónarmiðum og áherslum íbúa til sveitarstjórnar
  • sinna hlutverki náttúruverndarnefndar.

Heimastjórn fundar að jafnaði fyrsta fimmtudag í mánuði. Íbúar geta sent inn erindi eða ábendingar til heimastjórnar og þurfa þau að berast í síðasta lagi fjórum dögum fyrir viðkomandi fund. Mikilvægt er að erindin séu merkt heimastjórn. Erindi má skila á skrifstofur sveitarfélagsins eða senda á netfang starfsmanns heimastjórnar.

Starfsmaður heimastjórnar Djúpavogs er Greta Mjöll Samúelsdóttir en hún er með netfangið greta.mjoll.samuelsdottir@mulathing.is.


Erindisbréf  

Fundargerðir 

Nafn Staða Netfang

Heimastjórn Djúpavogs - aðalmenn

Heimastjórn Djúpavogs - varamenn

Getum við bætt efni þessarar síðu?