Fara í efni

Samvinna eftir skilnað

SES - Samvinna eftir skilnað - barnanna vegna

Foreldrar barna á aldrinum 0-18 ára, sem eru í skilnaðarferli eða hafa skilið fyrir einhverju síðan geta fengið námskeið, ráðgjöf og stuðning til að bæta samvinnu sín á milli.

Meginmarkmiðið er að koma í veg fyrir og/eða draga úr ágreiningi foreldra og styrkja foreldrasamvinnu með hagsmuni barnsins að leiðarljósi. Foreldrar öðlist færni í að takast á við óvæntar uppákomur tengdar skilnaðinum og auka skilning á viðbrögðum barna sinna við breytingunum.

Foreldrar geta nálgast námskeið með gagnreyndu námsefni á vefsíðu verkefnisins samvinnaeftirskilnad.is, sem er ætlað að hjálpa þeim við að takast á við breytingar og áskoranir sem algengar eru í kjölfar skilnaðar eða sambúðarslita. 

Ef foreldrar telja sig þurfa frekari stuðning og eða fræðslu eftir að hafa farið í gegnum námskeiðin geta þau fengið:

  • Sérhæfða ráðgjöf hjá SES ráðgjöfum félagsþjónustu Múlaþings.
  • SES hópnámskeið fyrir foreldra, þar sem fjallað er um áhrif skilnaðar á fjölskyldur. Námskeiðin fara fram þegar lámarksþátttaka næst.

Samvinna eftir skilnað (Samarbejde efter skilsmisse – SES) var þróað í Danmörku og hafa rannsóknir sýnt marktækan mun á líðan þeirra sem taka þátt í verkefninu og þeirra sem ekki gera það. Rafræna þjónustan á samvinnaeftirskilnad.is og ráðgjöfin hjá Félagsþjónustu Múlaþings er foreldrum að kostnaðarlausu.

Hefur þú áhuga á að kynna þér málið? Hafðu samband með því að senda póst á mulathing@mulathing.is eða hafa samband í síma 4 700 700, SES ráðgjafar taka vel á móti þér.

Ráðgjöf vegna barna

Stuðningur og ráðgjöf við barnafjölskyldur felst m.a. í uppeldisráðgjöf, fræðslu og námskeiðum.

Í sérstökum tilfellum er börnum sem búa við erfiðar aðstæður s.s. félagslega einangrun veitt þjónusta í formi persónulegs ráðgjafa.

Foreldrar fatlaðra barna geta fengið aðstoð við að halda utan um málefni barna sinna varðandi samræmingu á þjónustu, ráðgjafi getur tekið þátt í teymisfundum foreldra og þjónustuaðila ef óskað er og veitt ráðgjöf til þeirra aðila sem veita börnunum þjónustu.

Einnig er foreldrum veitt aðstoð við umsókn um fjárhagslega aðstoð til Tryggingarstofnunar . Þörf fyrir fjárhagsaðstoð er metin með tilliti til umönnunarþarfa viðkomandi barns og fötlunar þess og er aðstoðin ætluð til þess að mæta ýmsum kostnaði vegna þjónustu við barnið.

Síðast uppfært 11. mars 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?