Heimastjórn Fljótsdalshéraðs vinnur að því að tryggja áhrif og þátttöku íbúa í málefnum sem varða nærumhverfi og samfélagið á Fljótsdalshéraði. Heimastjórnin gegnir mikilvægu hlutverki sem tengiliður milli íbúa og sveitarstjórnar og getur komið málefnum og áherslum heimamanna á dagskrá sveitarfélagsins.
Helstu verkefni heimastjórnar eru meðal annars að:
- fjalla um skipulags- og umhverfismál á svæðinu
- sinna málefnum sem tengjast menningu og samfélagslífi
- fjalla um landbúnaðar- og atvinnumál
- veita umsagnir um staðbundin málefni og leyfisveitingar
- koma á framfæri sjónarmiðum og áherslum íbúa til sveitarstjórnar
- sinna hlutverki náttúruverndarnefndar.
Heimastjórn fundar að jafnaði fyrsta fimmtudag í mánuði. Íbúar geta sent inn erindi eða ábendingar til heimastjórnar og þurfa þau að berast í síðasta lagi fjórum dögum fyrir viðkomandi fund. Mikilvægt er að erindin séu merkt heimastjórn. Erindi má skila á skrifstofur sveitarfélagsins eða senda á netfang starfsmanns heimastjórnar.
Starfsmaður heimastjórnar Fljótsdalshéraðs er Hlynur Jónsson og hann er með netfangið: hlynur.jonsson@mulathing.is.
Erindisbréf 
Fundagerðir
Fundardagar sveitarstjórnar og fastanefnda
| Nafn |
Staða |
Netfang |
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - aðalmenn
|
|
Anna H. Bragadóttir
|
|
Eiður Ragnarsson (B)
|
|
Hafsteinn Jónasson
|
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - varamenn
|
|
Guðný Drífa Snæland
|
|
Jóhann Gísli Jóhannsson
|
|
Þórey Birna Jónsdóttir (B)
|