Fara í efni

Fatlað fólk


Í Múlaþingi er boðið upp á fjölbreytta þjónustu fyrir fatlað fólk og er markmiðið að tryggja fötluðu fólki jafnan aðgang að tækifærum og lífsgæðum á við aðra.

Málefni fatlaðs fólks falla undir velferð hjá Múlaþingi og er þjónustan veitt í samræmi við lög um félagsþjónustu sveitarfélaga, barnaverndarlög og lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Gagnlegir tenglar:

Akstursþjónusta

Fatlað fólk sem ekki getur nýtt sér almenningsfarartæki getur átt rétt á akstursþjónustu í Múlaþingi til að geta komist ferða sinna til dæmis í vinnu, nám, tómstundir, hæfingar og leitað sér lækninga. Skilyrði fyrir akstursþjónustu er að notandi eigi lögheimili í Múlaþingi og hann komist ekki ferða sinna með sambærilegum hætti og ófatlaðir íbúar. Börn með fötlun geta einnig átt rétt á akstursþjónustu.

Múlaþing rekur bíl sem sinnir akstursþjónustu fyrir fatlað fólk frá kl. 8:00-16:30 alla virka daga í þéttbýli Egilsstaða og er þjónustan gjaldfrjáls. Í öðrum kjörnum Múlaþings er unnið að lausnum fyrir hvern einstakling fyrir sig.

Símanúmer bílstjóra ferðaþjónustu fatlaðra er 893-2077.

Akstursþjónusta er veitt samkvæmt lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.

Umsókn um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk í Múlaþingi

Reglur Múlaþings um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk

Tengill á gjaldskrá fyrir akstursþjónustu í Múlaþingi

Þjónusta við fatlað fólk á heimilum sínum

Þjónusta til fatlaðs fólks er veitt samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Um er að ræða persónulega aðstoð við athafnir daglegs lífs sem kemur til viðbótar við stuðningsþjónustu sem er veitt samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaganna.

Markmiðið er að gera fötluðu fólki kleift að búa á eigin heimili í samræmi við þarfir og óskir hvers og eins. Um getur verið að ræða félagslegar leiguíbúðir eða sértækt húsnæðisúrræði í þjónustukjarna.

Þjónustan er veitt samkvæmt reglum um stuðningsþjónstu og reglum um félagslegt húsnæði.

Umsókn um félagslegt leiguhúsnæði tengill á síðu

Umsókn um stuðningsþjónustu tengill á síðu

Styrkir vegna endurhæfingar

Veittir eru styrkir vegna námskostnaðar, verkfæra- og tækjakaupa vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi að endurhæfingu lokinni. Um ýmis verkfæri og tæki vegna náms eða í atvinnuskyni getur verið að ræða t.d. tölvukaup eða annað.

Reglur um styrki til náms, verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks

Umsókn um styrk til náms, verkfæra- og tækjakaupa

Stólpi

Í Stólpa á fatlað fólk, sem ekki starfar á almennum vinnumarkaði, kost á félagslegri hæfingu og iðju. Hæfing og iðja er alhliða félagsleg þjálfun sem miðar að vellíðan og virkni. Áherslan er á listsköpun, afþreyingu og vinnuverkefni í tengslum við almennan vinnumarkað. Ekki eru greidd laun í hæfingu/iðju.

Stólpi er til húsa að Lyngási 12, Egilsstöðum og síminn þar er 471 1090.

Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA)

Í lögum um málefni fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 er kveðið á um innleiðingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA).

Notendastýrð persónuleg þjónusta er byggð á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf. Í reglum félagsþjónustunnar um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk er tekið mið af handbók um NPA og leiðbeinandi reglum um innleiðingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar. Félagsþjónustan tekur á móti umsóknum t.d. í formi bréfs.

Reglur um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk hjá Múlaþingi.

Umsóknareyðublað - í vinnslu

Fötluð börn

Ráðgjöf

Foreldrar fatlaðra barna geta fengið aðstoð við að halda utan um málefni barna sinna varðandi samræmingu á þjónustu. Ráðgjafi getur tekið þátt í teymisfundum foreldra og þjónustuaðila ef óskað er og veitt ráðgjöf á heimili barnsins. 

Stuðningsþjónusta/liðveisla

Fötluð börn skulu eiga kost á stuðningsþjónustu í formi liðveislu en með því er átt við persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun, t.d. aðstoð við að njóta menningar og félagslífs og efla viðkomandi til sjálfshjálpar. Við mat á þjónustuþörf er tekið mið af aðstæðum viðkomandi.

Reglur um stuðningsþjónustu hjá Múlaþingi

Umsókn um stuðningsþjónustu tengill á síðu

Stuðningsfjölskyldur

Fjölskyldur fatlaðra barna skulu eiga kost á stuðningsfjölskyldu eftir því sem þörf krefur. Nánar um stuðningsfjölskyldur.

Gagnlegir tenglar

Umboðsmaður barna

Réttindagæsla fyrir fatlað fólk

Ráðgjafar- og greiningarstöð

Landsamtökin Þroskahjálp

Geðhjálp

Tryggingastofnun ríkisins

Síðast uppfært 08. október 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?