Fara í efni

Velferðarþjónusta

Félagsleg ráðgjöf 

Í félagslegri ráðgjöf felst meðal annars að veittar eru upplýsingar um ýmis réttindamál en einnig er veitt ráðgjöf vegna atvinnu- og endurhæfingarmála, fjármála, húsnæðismála og fjölskyldumála. Lögð er áhersla á persónulegan stuðning, samræmingu þjónustu og lausnamiðuð stuðningsviðtöl. Haft er að leiðarljósi að styðja einstaklinginn eða fjölskylduna til sjálfshjálpar þannig að hver einstaklingur geti sem best notið sín í samfélaginu. Farið er með persónulegar upplýsingar málsaðila samkvæmt ströngustu reglum um persónuvernd og gögn vistuð samkvæmt lögum þar að lútandi.

Félagsleg ráðgjöf er veitt samkvæmt lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.

Hægt er að óska eftir viðtali við ráðgjafa velferðar á fjölskyldusviði með því að hringja í síma Múlaþings 4 700 700 eða senda tölvupóst á netfangið mulathing@mulathing.is.


Fjárhagsaðstoð

Samkvæmt lögum ber einstaklingum skylda til að framfæra sjálfa sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Sveitarfélög hafa jafnframt skyldu til að veita íbúum sínum þjónustu og aðstoð við að leysa úr erfiðleikum eða koma í veg fyrir að þeir geti ekki séð fyrir sér og sínum. Annars vegar er möguleiki á framfærslustyrk frá sveitarfélaginu, en hins vegar er heimilt að veita einstaklingum og fjölskyldum aðstoð vegna sérstakra aðstæðna og til að koma til móts við þarfir barna vegna þátttöku í þroskavænlegu félagsstarfi. Fjölskylduráð Múlaþings hefur sett reglur um fjárhagsaðstoð sem ráðgjafar velferðar á fjölskyldusviði fylgja við vinnslu umsókna.

Fjárhagsaðstoð er veitt samkvæmt lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.

Hægt er að óska eftir viðtali við ráðgjafa velferðar á fjölskyldusviði með því að hringja í síma Múlaþings 4 700 700 eða senda tölvupóst á netfangið mulathing@mulathing.is.

Reglur um fjárhagsaðstoð

Umsókn um fjárhagsaðstoð


Stuðnings- og stoðþjónusta

Stuðnings- og stoðþjónusta felur í sér fjölbreytta aðstoð fyrir einstaklinga, fjölskyldur og heimili. Markmið þjónustunnar er að aðstoða og styrkja viðkomandi sem þarf aðstæðna sinna vegna á stuðningi að halda við heimilishald, athafnir dagslegs lífs og til þess að rjúfa félagslega einangrun. Efla sjálfshjálp og gera viðkomandi kleift að búa sem lengst í heimahúsi. Auk þess að stuðla að farsæld barna með það að markmiði að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að þjónustu við hæfi, án hindrana. Umsóknir eldri borgara um stuðningsþjónustu eru unnar í sameiginlegu teymi heimahjúkrunar Heilbrigðisstofnunar Austurlands og velferðarþjónustu Múlaþings, samkvæmt samningi þar um. Heimsending matar er veitt samkvæmt reglum um félagslega heimaþjónustu. Þjónustan er niðurgreidd af sveitarfélagi og er þörf metin í hverju tilfelli fyrir sig.

Stuðnings- og stoðþjónusta er veitt samkvæmt lögum nr. 49/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga og lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Hægt er að óska eftir viðtali við ráðgjafa velferðar á fjölskyldusviði með því að hringja í síma Múlaþings 4 700 700 eða senda tölvupóst á netfangið mulathing@mulathing.is.

Stuðnings- og stoðþjónusta getur til dæmis falið í sér:

  • Aðstoð við persónulega umsjá og heimilishald.
  • Félagslegan stuðning.
  • Heimsendingu matar.
  • Aðstoð við innkaup og erindrekstur.
  • Aðstoð við umsjá veikra eða fatlaðra barna.
  • Öryggisinnlit.
  • Sólarhringsþjónustu á heimilum fatlaðs fólks í búsetukjörnum.

Reglur um stuðningsþjónustu

Umsókn um stuðningsþjónustu

Gjaldskrá fyrir stuðningsþjónustu


Félagslegt húsnæði

Með félagslegu húsnæði er átt við almennt félagslegt húsnæði og sértækt húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk. Hlutverk sveitarfélagsins er að tryggja, eftir því sem kostur er og þörf er á, framboð af leiguhúsnæði handa þeim fjölskyldum sem ekki eru færar um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrðar eða annarra félagslegra aðstæðna.

Úthlutun félagslegra leiguíbúða er framkvæmd á grundvelli laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga og laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Hægt er að óska eftir viðtali við ráðgjafa velferðar á fjölskyldusviði með því að hringja í síma Múlaþings 4 700 700 eða senda tölvupóst á netfangið mulathing@mulathing.is

Reglur um úthlutun félagslegra leiguíbúða

Umsókn um félagslegt húsnæði


Sérstakur húsnæðisstuðningur

Múlaþing veitir tvenns konar sérstakan húsnæðisstuðning vegna húsaleigu. Annars vegar til einstaklinga sem ekki eru með öðrum hætti fær um að sjá sér fyrir húsnæði eða eru með íþyngjandi húsnæðiskostnað sökum lágra tekna, þungrar framfærslubyrðar og félagslegra aðstæðna. Hins vegar er veittur stuðningur til foreldra eða forsjáraðila 15-17 ára barna sem leigja herbergi á heimavist eða námsgörðum hér á landi vegna barna fjarri lögheimili.

Sérstakur húsnæðisstuðningur er veittur samkvæmt lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.

Hægt er að óska eftir viðtali við ráðgjafa velferðar á fjölskyldusviði með því að hringja í síma Múlaþings 4 700 700 eða senda tölvupóst á netfangið mulathing@mulathing.is.

Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning

Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning 

Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning vegna 15-17 ára barna á heimavist eða námsgörðum


Ásheimar – athvarf

Ásheimar geðræktarmiðstöð er athvarf fyrir einstaklinga sem telja sig félagslega einangraða. Ásheimar eru með aðstöðu í Hlymsdölum, Miðvangi 6, Egilsstöðum og mótast starfsemin að miklu leyti af óskum og þörfum notenda hverju sinni. Markmið starfseminnar er að vinna gegn félagslegri einangrun og að skapa aðstæður fyrir einstaklinga til að byggja sig upp andlega. Opnunartími Ásheima er frá klukkan 13-16 alla virka daga.

Frekari upplýsingar veita ráðgjafar velferðar á fjölskyldusviði í síma 4 700 700 eða í tölvupósti á mulathing@mulathing.is.


Andrúm – Geðræktarmiðstöð Austurlands

Andrúm - Geðræktarmiðstöð Austurlands er virknimiðstöð og eru markmið hennar að efla tengsl einstaklinga við samfélagið og styrkja upplifun þeirra af því að vera hluti af heild. Í boði er fjölbreytt dagskrá sem mótuð er í samstarfi við notendur. Verkefnið er styrkt af Alcoa Foundation og er samstarfsverkefni Austurbrúar, Starfsendurhæfingar Austurlands (StarfA), Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA), Múlaþings og Fjarðabyggðar.

Andrúm - Geðræktarmiðstöð Austurlands er starfrækt í húsnæði StarfA á Egilsstöðum á þriðjudögum og fimmtudögum frá klukkan 13-16 og í Fjárhúsunum Fellabæ á mánudögum frá klukkan 13-16.

Einnig er Andrúm með starfsemi í félagsheimili eldri borgara að Melgerði 13 á Reyðarfirði og þar er opið á miðvikudögum og föstudögum frá klukkan 13-16.

Tengill á Facebook síðu Andrúms: https://www.facebook.com/profile.php?id=61581749678336


Gagnlegir tenglar

Rauði krossinn á Íslandi (raudikrossinn.is)

Samtök um kvennaathvarf – Kvennaathvarfið

Stígamót

ÖBÍ - ÖBI (obi.is)  

Geðhjálp

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið  

Tryggingastofnun ríkisins

Vinnumálastofnun

Umboðsmaður skuldara

Húsnæðisbætur | Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Síðast uppfært 05. ágúst 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?