Fara í efni

Eldri borgarar

Múlaþing leggur áherslu á að veita fjölbreytta og einstaklingsmiðaða þjónustu fyrir eldri borgara með það að markmiði að styðja við sjálfstæði, öryggi og virkni. Boðið er upp á ráðgjöf, heimastuðning, félagsstarf og aðra þjónustu sem gerir fólki kleift að búa sem lengst á eigin heimili og taka virkan þátt í samfélaginu.

Eldri borgarar geta sótt um félagslegan stuðning sé þörf á því, sjá nánar undir velferðarþjónustu.

Dagdvöl

Samkvæmt lögum um málefni aldraðra er dagdvöl eldri borgara ætluð fólki sem býr á eigin heimili en þarf á stuðningi að halda til að geta búið þar sem lengst. Á vegum sveitarfélagsins er rekin dagdvöl í Hlymsdölum að Miðvangi 6, Egilsstöðum, s. 4 700 798, og einnig í Tryggvabúð, Markarlandi 2, Djúpavogi, s. 4 708 745.

Markmið þjónustunnar er að fólk geti notið persónulegrar aðstoðar í notalegu umhverfi þar sem bæði félagslegum og líkamlegum þörfum þess er mætt.

Hér er hægt að nálgast umsókn um þjónustuna.

Félagsstarf

Mikilvægt er að tryggja eldri borgurum eins og öðrum viðfangsefni í frítímanum og auka þannig líkur á að þeir kjósi heilbrigðan lífsstíl og einangri sig ekki félagslega. Lögð er áhersla á að virkja þátttöku allra þeirra sem þjónustan snýr að og leitast við að koma til móts við þarfir ólíkra hópa.

Tómstundastarf í Múlaþingi veturinn 2026-2027

Hlymsdalir

Hlymsdalir er félagsmiðstöð, staðsett á Egilsstöðum, þar sem fram fer fjölbreytt félags- og tómstundastarf fyrir íbúa sveitarfélagsins í samstarfi við Félag eldri borgara á Fljótsdalshéraði.

Starfsfólk Félagsþjónustunnar annast fræðslu og ráðgjöf við einstaklinga með vikulegri viðveru í Hlymsdölum.

Mataráskrift á efri árum er samvinnuverkefni Félags eldri borgara á Fljótsdalshéraði, HSA og Múlaþings.

Umsókn um mataráskrift á efri árum í Hlymsdölum

Miðvangi 6
700 Egilsstaðir
Facebooksíða Hlymsdala

 

 

Tryggvabúð

Tryggvabúð er félagsaðstaða eldri borgara á Djúpavogi. Félagsstarfið hefur upp á margt að bjóða. Til að mynda upplestur, hlusta á hljóðbækur, horfa á alls kyns myndefni, boccia, pílu, perla, gátur, þrautir, umræður og spjall. Boðið er upp á hádegisverð og kaffitíma á opnunardögum.

Markarlandi 2
765 Djúpivogur 
Facebooksíða Tryggvabúðar
Netfang: tryggvabud@mulathing.is

 Lækjartún

Lækjartún er félagsmiðstöð Framtíðarinnar, félags eldri borgara á Seyðisfirði. Þjónusta fyrir eldri borgara á vegum sveitarfélagsins er meðal annars sundleikfimi, handavinna, félagsleg heimaþjónusta og matarsendingar.

Framtíðin, félag eldri borgara
Lækjargata 2, nr. 109
710 Seyðisfjörður
Sími: 472 1145 og  778 7752
Facebooksíða Framtíðar félag eldri borgara á Seyðisfirði
Netfang: framtidinsey@gmail.com


Gagnlegir tenglar

Heimasíða félags eldri borgara á Egilsstöðum 

Tryggingastofnun ríkisins

Vefsvæðið "Að eldast" inni á island.is 

Landssamband eldri borgara 

Lög um málefni aldraðra nr. 125/1999 

Lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 

Vefur Heilbrigðisstofnunar Austurlands 

Síðast uppfært 28. september 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?