Bókasafn Múlaþings er staðsett á þremur stöðum í sveitarfélaginu; á Egilsstöðum, Seyðisfirði og Djúpavogi.
Bókasafn Múlaþings er í samstarfi við leik- og grunnskóla sveitarfélagsins, önnur söfn, félagasamtök og aðra sem óska þess að nýta aðstöðuna.
Bókasafn Múlaþings er menningar-, upplýsinga- og menntastofnun, rekið af sveitarfélaginu og skulu allir íbúar eiga kost á að njóta þjónustu þess.
Nútímabókasöfn eru samfélagsmiðjur, þriðja rými íbúa, það er hlutlaus staður sem hvorki er heimili, vinna né skóli. Þau eru athvarf fyrir notendur og eru einn af fáum stöðum þar sem fólk getur verið innandyra endurgjaldslaust.
Bókasafn Múlaþings er á Facebook
og Instagram 
Gjaldskrá
Menningarstefna
Bókasafn Múlaþings, Egilsstöðum
Bókasafn Múlaþings, Djúpavogi
Bókasafn Múlaþings, Seyðisfirði
Bókasafn Múlaþings, Seyðisfirði var stofnað árið 1892 og var Amtsbókasafn Austuramts allt fram á áttunda áratug síðustu aldar. Safnkosturinn er aðallega íslenskar bækur, tímarit og hljóðbækur.
Safnið er opið á sumrin (júní til ágúst) mánudaga til fimmtudaga frá klukkan 13:00-17:00 og á veturna mánudaga til föstudaga frá klukkan 15:00-18:00.
Skólavegi 1
Sími: 470 2339
Netfang: bokasafn.seydisfjardar@mulathing.is
Leita í safnkosti Bókasafns Seyðisfjarðar 