Heimastjórn Seyðisfjarðar vinnur að því að tryggja áhrif og þátttöku íbúa í málefnum sem varða nærumhverfi og samfélagið á Seyðisfirði. Heimastjórnin gegnir mikilvægu hlutverki sem tengiliður milli íbúa og sveitarstjórnar og getur komið málefnum og áherslum heimamanna á dagskrá sveitarfélagsins.
Helstu verkefni heimastjórnar eru meðal annars að:
- fjalla um skipulags- og umhverfismál á svæðinu
- sinna málefnum sem tengjast menningu og samfélagslífi
- fjalla um landbúnaðar- og atvinnumál
- veita umsagnir um staðbundin málefni og leyfisveitingar
- koma á framfæri sjónarmiðum og áherslum íbúa til sveitarstjórnar
- sinna hlutverki náttúruverndarnefndar.
Heimastjórn fundar að jafnaði fyrsta fimmtudag í mánuði. Íbúar geta sent inn erindi eða ábendingar til heimastjórnar og þurfa þau að berast í síðasta lagi fjórum dögum fyrir viðkomandi fund. Mikilvægt er að erindin séu merkt heimastjórn. Erindi má skila á skrifstofur sveitarfélagsins eða senda á netfang sveitarfélagsins eða starfsmanns heimastjórnar.
Starfsmaður heimastjórnar Seyðisfjarðar er Inga Þorvaldsdóttir og hún er með netfangið: inga.thorvaldsdottir@mulathing.is.
Erindisbréf 
Fundagerðir
| Nafn |
Staða |
Netfang |
Heimastjórn Seyðisfjarðar - aðalmenn
|
|
Einar Freyr Guðmundsson (D)
|
Hildur Þórisdóttir
Starfar fyrst og fremst í mannauðsmálum og í ráðgjöf til stjórnenda sveitarfélagsins.
|
Ívar Karl Hafliðason (D)

|
|
Margrét Guðjónsdóttir
|
Heimastjórn Seyðisfjarðar - varamenn
|
Berglind Harpa Svavarsdóttir (D)

|
|
Grímur Orri Sölvason
|
|
Sveinn Ágúst Þórsson
|