Fara í efni

Gjaldskrá

.

Gjaldskrá fyrir meðhöndlun og förgun úrgangs í Múlaþingi

Gjaldskráin birt í stjórnartíðindum

1. gr. Samþykktir, lög og reglur.

Gjaldskrá þessi er sett með vísun til samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Múlaþingi nr. 1202/2021, sbr. 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, og 23. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003.

2. gr. Sorphirðugjald.

Múlaþing felur verktaka framkvæmd sérstakrar söfnunar úrgangs frá öllu íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu. Við hvert heimili/íbúðarhús skal flokkað í fjóra flokka í fjögur ílát innan lóðar: pappír/pappa, plast, matarleifar og blandaðan úrgang.

Sorphirðugjöld taka mið af stærð íláta undir hvern úrgangsflokk og fjarlægð þeirra frá söfnunarleið sorphirðubíls og geta því verið breytileg. Fasteignaeigendur og húsfélög geta óskað eftir breytingum á ílátum skv. gjaldskrá. Um ákvarðanir húsfélaga gilda lög um fjöleignarhús nr. 26/1994. Ílát skulu rúma þann úrgang sem myndast milli hirðuumferða þannig að auðveldlega megi loka þeim, flytja og tæma.

Íbúðir í fjölbýli greiða hlutfall af kostnaði sorpíláta miðað við eignarhlut í sameign sbr. lög um fjöleignarhús nr. 26/1994 og reglugerð nr. 910/2000. Stærðir og fjöldi íláta mega ekki vera minni en sem nemur 140 lítrum fyrir pappír og pappa, plast og blandaðan úrgang per íbúð. Við hvert fjölbýli skal að lágmarki vera eitt 140 lítra ílát undir matarleifar.

Múlaþingi er heimilt að verða við óskum fasteignaeigenda um sameiginleg ílát innan lóðar háð því að öll ílát séu geymd á sama stað.

Söfnun úrgangs í Múlaþingi fer fram í samræmi við útgefið sorphirðudagatal sem er aðgengilegt á heimasíðu sveitarfélagsins.

Breytileg gjöld fyrir sorpílát sem eru allt að 15 m frá hirðubíl eftir úrgangstegund
(kr. á ári)

Stærð íláts (lítrar)

Pappír og pappi

Plast

Matarleifar

Blandaður úrgangur

140

 

 

13.500*

19.300

240

9.600

9.600

 

33.100

360

14.400

14.400

 

49.700

660

26.400**

26.400***

 

91.100**

1100

44.000**

44.000***

 

151.800**

* Notast við 120 eða 140 lítra tunnu.
** Aðeins í boði fyrir fjölbýli og íbúðarhús í dreifbýli.
*** Aðeins í boði fyrir fjölbýli.

Önnur gjöld sem er heimilt að innheimta vegna auka þjónustu:

  • Skrefa- og tröppugjald er innheimt af ílátum sem eru fjær hirðubíl en 15 metrar eða þarf að draga upp eða niður fleiri en 5 tröppur.
  • Umsýslugjald er greitt í hvert skipti sem óskað er eftir breytingum á skráningu íláta.
  • Tunnugjald er innheimt ef ílát týnist eða skemmist af völdum íbúa s.s. vegna vanhirðu.
  • Útkeyrslugjald er greitt við afhendingu nýrra íláta á staðfang, ef skipt er á milli stærða eða ílátum fækkað.

Önnur gjöld

Þjónusta

Gjald

Eining

Tunnugjald (140 – 360 l ílát)

12.000

kr./ílát

Tunnugjald (660 – 1100 l ílát)

50.000

kr./ílát

Umsýslugjald

4.000

kr./breyting

Skrefa- og tröppugjald

5.000

kr./ílát

Útkeyrslugjald íláta á staðfang

5.000

kr./sending

3. gr. Fast gjald.

Fast gjald er lagt á allar fasteignir innan Múlaþings árlega til að standa straum af veittri þjónustu tengdri málaflokknum og er ekki beintengt úrgangsmagni s.s. umsýslu, fræðslu, hreinsun rusls á víðavangi, rekstur grenndarstöðva og aðgengi að söfnunarstöðvum með gjaldfrjálsan úrgang.

Álagningin er á fasteignir í a-, b- og c-lið samkvæmt 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

Fast gjald á fasteignir í a-flokki er 17.250 kr.

Fast gjald á fasteignir í b- og c-flokki er 46.000 kr.

4. gr. Frístundahús og takmörkuð ívera.

Öll frístundahús (sumarbústaðir o.þ.h.) greiða fast gjald skv. 3. gr. Frístundahús utan sumarhúsahverfa með fleiri en 20 sumar- eða frístundahús njóta almennt ekki sorphirðuþjónustu en geta losað sig við gjaldfrjálsan úrgang á móttöku- og grenndarstöðvum. Greiða þarf fyrir gjaldskyldan úrgang.

Liggi frístundahús hins vegar við söfnunarleið sorphirðuverktaka getur eigandi fasteignar óskað eftir sömu þjónustu og ef um íbúðarhús væri að ræða og greiðir þá full gjöld fyrir.

Á hvert frístundahús sem er innan sumarhúsahverfis með yfir 20 sumarhúsum er að auki lagt 22.000 kr. sorphirðugjald enda geti eigendur slíkra húsa losað sig við úrgang í ílát í nágrenni við sumarhúsahverfið.

Eigendur íbúðarhúsa í dreifbýli sem eru notuð til takmarkaðrar íveru óskað eftir að afþakka sorphirðuþjónustu og greiða þá aðeins fast gjald. Skilyrði er að enginn sé með skráð lögheimili í húsinu og að sorpílátum sé skilað til Múlaþings.

Múlaþingi er heimilt að verða við beiðni eigenda íbúðarhúsa í þéttbýli með takmarkaða íveru, s.s. vegna skriðu- eða snjóflóðahættu, um sorphirðuþjónustu. Sorphirða skal aðeins veitt yfir þann tíma sem heimilt er að dvelja í húsinu og taka gjöld mið af því.

5. gr. Heimajarðgerð.

Íbúar sem jarðgera eigin úrgang við heimili sín geta sótt um að skila tunnu undir matarleifar til sveitarfélagsins. Í stað tunnugjalds fyrir matarleifar greiðir fasteignaeigandi ársgjald heimajarðgerðar skv. 2. gr.

Nauðsynlegt er að sýna fram á með óyggjandi hætti að heimajarðgerð fari raunverulega fram. Takist það ekki eftir að umsókn um heimajarðgerð hefur verið samþykkt er heimilt að innheimta full gjöld fyrir allt að tvær tunnur undir matarleifar fyrir viðkomandi ár auk ársgjalds heimajarðgerðar.

6. gr. Þjónustugjald á urðunarstað.

Fyrir farma sem komið er með á urðunarstað sveitarfélagsins skal flutningsaðili greiða 60 kr./kg án virðisaukaskatts samkvæmt vigt á söfnunarstöð sveitarfélagsins á Egilsstöðum. Flutningsaðili úrgangs skal veita þær upplýsingar um úrgang sem óskað er eftir s.s. lýsingu á úrgangi og uppruna hans. Farmar skulu almennt vega meira en 1.000 kg.

Aðeins þeir sem hafa heimild sveitarfélagsins og eru með starfsleyfi til að flytja úrgang er heimilt að koma með úrgang á urðunarstað. Ekki er heimilt að flytja úrgang sem á uppruna sinn utan sveitarfélagsins á urðunarstað án leyfis Múlaþings. Múlaþing getur lagt 50% hærra gjald á slíkan úrgang en segir í 1. mgr.

Öll losun skal fara fram í samráði við rekstraraðila urðunarstaðar.

Flutningsaðili úrgangs ber ábyrgð á þeim farmi sem hann flytur inn á urðunarstaðinn þar til hann hefur verið móttekinn. Flutningsaðili skal fylgja reglum um urðunarstaði í Múlaþingi. Farmar sem innihalda annan úrgang en þann sem heimilt er að losa á urðunarstað skv. reglugerð nr. 738/2003, eða úrgang sem væri hæfur til endurvinnslu, verður hafnað. Komi í ljós að farmur innihaldi slíkan úrgang eftir að losun fer fram er heimilt að innheimta raunkostnað vegna hreinsunaraðgerða af flutningsaðila. Auk þess getur sveitarfélagið dregið til baka heimild til farmlosunar á urðunarstað.

7. gr. Þjónustugjald á söfnunarstöðvum á Egilsstöðum og Seyðisfirði.

Rekstraraðili annast innheimtu gjalda á söfnunarstöðvum á Egilsstöðum og Seyðisfirði og setur sér gjaldskrá vegna þessa. Rekstraraðila er heimilt að áætla magn úrgangs við innheimtu. Gjöld rekstraraðila söfnunarstöðvar fyrir gjaldskyldan úrgang mega að hámarki vera 20% hærri en þjónustugjald á urðunarstað skv. 6. gr.

Rekstraraðila er heimilt að setja á komugjald/lágmarksgjald fyrir gjaldskyldan úrgang í samráði við Múlaþing. Aðeins er tekið við rafrænum greiðslum á söfnunarstöðvum eða að aðilar séu í reikningsviðskiptum.

Gjaldskyldur úrgangur er alla jafna óendurvinnanlegur úrgangur til urðunar. Dæmi um gjaldskyldan úrgang eru: blandaður heimilisúrgangur, grófur úrgangur s.s. húsgögn, gluggar, rúmfrekur úrgangur, litað timbur og hart plast. Matarleifar og hreint timbur eru einnig gjaldskyld en fara þó ekki í urðun.

Ekki er tekið gjald fyrir endurvinnanlegan úrgang sem ber úrvinnslugjald. Dæmi um gjaldfrjálsan úrgang eru: plastumbúðir, pappi og pappír, málmar, hjólbarðar, raftæki og ýmis spilliefni.

8. gr. Þjónustugjald á söfnunarstöðvum á Djúpavogi og Borgarfirði.

Á söfnunarstöðvum Múlaþings á Djúpavogi og Borgarfirði er almennt innheimt gjald skv. rúmmáli úrgangs. Móttökugjöld fyrir einstaka farma eru 1.000 kr. fyrir hverja 0,25 m³ af gjaldskyldum úrgangi. Starfsmaður metur umfang hvers farms og innheimtir gjald fyrir. Aðeins er tekið við rafrænum greiðslum en fyrirtæki geta verið í reikningsviðskiptum.

Stærri úrgangsfarma er þó heimilt að vigta á hafnarvog sveitarfélagsins á Djúpavogi á opnunartíma hennar og greiðir flutningsaðili 72 kr./kg. án virðisaukaskatts. Önnur gjöld kunna að eiga við skv. gjaldskrá fyrir hafnir Múlaþings. Framvísa þarf vigtarnótu á söfnunarstöð sé farmur vigtaður.

Dæmi um gjaldskyldan og gjaldfrjálsan úrgang eru nefnd í 7. gr.

Fyrir úrgang sem reynist kostnaðarsamur við förgun, s.s. ber ekki úrvinnslugjald og er óheimilt að urða, er heimilt að innheimta gjöld fyrir útlögðum kostnaði.

Fyrir óflokkaða farma er heimilt að innheimta gjald fyrir útselda vinnu starfsmanna þjónustumiðstöðva og tækja Múlaþings skv. gjaldskrá þar um.

9. gr. Klippikort.

Múlaþing afhendir hvorki né selur klippikort á söfnunarstöðvar sveitarfélagsins. Á söfnunarstöðvum er greitt gjald fyrir móttöku á gjaldskyldum úrgangi skv. 7. og 8. gr.

Klippikort sem Múlaþing hefur áður afhent og eru með ártali gilda aðeins fyrir úrgáfuárið.

Klippikort sem Múlaþing hefur selt er hægt að skila inn til sveitarfélagsins og fá endurgreitt í hlutfalli við notkun. Nauðsynlegt er að sýna fram á að kort hafi verið keypt.

10. gr. Aðrar heimildir.

Sveitarstjórn Múlaþings er heimilt að gera sérstaka samninga um móttöku úrgangs og aðra þjónustuþætti, þegar um er að ræða afmarkaðri eða víðtækari þjónustu en gjaldskrá tekur til.

11. gr. Innheimta.

Verði vanskil á greiðslu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari er hægt að innheimta gjöld með aðför, sbr. 4. mgr. 23. gr. laga um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003 m.s.br., sbr. 1. gr. laga um aðför nr. 90/1989. Gjöld eru tryggð með lögveðsrétti í viðkomandi fasteign í tvö ár eftir gjalddaga, sbr. 5. mgr. 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 m.s.br.

12. gr. Staðfestingar og gildistaka.

Gjaldskrá þessi er samþykkt af umhverfis- og framkvæmdaráði og staðfest af sveitarstjórn Múlaþings þann 11. febrúar 2026. Gjaldskrá þessi tekur gildi við birtingu. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir meðhöndlun og förgun úrgangs í Múlaþingi nr. 1576/2025.

 

Samþykkt í sveitarstjórn Múlaþings 11. febrúar 2026

Síðast uppfært 07. mars 2025
Getum við bætt efni þessarar síðu?