Fara í efni

Vinnuskóli Múlaþings

Meginhlutverk Vinnuskóla Múlaþings er að veita nemendum úr efstu bekkjum grunnskóla sveitarfélagsins, og 17 ára ungmennum, uppbyggileg sumarstörf ásamt fræðslu í öruggu starfsumhverfi. Vinnuskólinn er bæði vinna og skóli, félagslega skapandi vinnustaður, með kennslu í almennri vinnuskólavinnu með skýrar reglur varðandi vinnuumhverfi.

Vinnuskólinn er forvarnarstofnun en rannsóknir og reynsla sýna að mest hætta er á að unglingar leiðist út í óreglu á sumrin og eru helstu orsakir rýmri tími, minna aðhald og meiri fjárráð. Með reglulegri vinnu, markvissri fræðslu og sterkum fyrirmyndum er reynt að sporna gegn óreglu.

Öllum ungmennum fædd á árunum 2009 – 2013 og eiga lögheimili í sveitarfélaginu, eða eiga foreldri/forráðafólk sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu, býðst að starfa við fjölbreytt verkefni í Vinnuskólanum. Flest snúa þau að garðyrkju og umhirðu í sveitarfélaginu. Elstu árgangar kunna þó einnig að aðstoða við Sumarfrístund eða slátt. Þá býðst 14 ára að sækja Sjávarútvegsskólann í eina vinnuviku.

Markmið vinnuskólans

Lögð er áhersla á að kenna vönduð vinnubrögð og góða samvinnu í skemmtilegu vinnuumhverfi.

  • Kenna nemendum verklag, ábyrgð, virðingu, stundvísi og aga.
  • Fegra og snyrta umhverfi okkar og halda því óaðfinnanlegu
  • Byggja upp vinnuvirðingu hjá nemendum og starfsfólki.
  • Skapa trausta og sterka liðsheild í öllu starfi Vinnuskólans.
  • Bjóða upp á starf með áherslu á þátttöku nemenda í þroskandi og skapandi starfi.
  • Viðhalda jákvæðri ímynd vinnuskólans og gera hana enn jákvæðari.
  • Veita fræðslu á ýmsum sviðum auk forvarna.

Umsóknir í vinnuskólann

Umsókn um starf í Vinnuskóla - börn 13 ára á árinu

Umsókn um starf í Vinnuskóla - börn 14 ára á árinu

Umsókn um starf í Vinnuskóla - börn 15 ára á árinu

Umsókn um starf í Vinnuskóla - börn 16 ára á árinu

Umsókn um starf í Vinnuskóla - börn 17 ára á árinu

Umsóknafrestur er til og með 17. maí nk. Ekki verður tekið á móti umsóknum eftir þann tíma.


Starfstími

Starfstími skólans sumarið 2026 er frá 10. júníog fram til 13. ágúst eða í um 10 vikur samtals. Vikufjöldi í Vinnuskólanum er þó ólíkur milli árganga.

Unnið er fjóra daga vikunnar: mánudag til fimmtudags og frí á föstudögum. Vinnudögum kann þó að vera hliðrað fyrir elstu aldurshópa sem aðstoða við Sumarfrístund.

13 ára (árg. 2013) hafa kost á vinnu í 6 vikur, 3 klst. á dag, 4 daga vikunnar.

14 ára (árg. 2012) hafa kost á vinnu í 6 vikur, 3 klst. á dag, 4 daga vikunnar.

15 ára (árg. 2011) hafa kost á vinnu í 10 vikur, 6 klst. á dag, 4 daga vikunnar.

16 ára (árg. 2010) hafa kost á vinnu í 10 vikur, 6 klst. á dag, 4 daga vikunnar.

17 ára (árg. 2009) hafa kost á vinnu í 10 vikur, 6 klst. á dag, 4 daga vikunnar. Í umsókn geta 17 ára ungmenni óskað eftir að hefja störf viku fyrr.


Laun og launagreiðslur

Laun nemenda verða sem hér segir:

13 ára (árg. 2013): 955 kr./klst.

14 ára (árg. 2012): 1.433 kr./klst.

15 ára (árg. 2011): 1.751 kr./klst.

16 ára (árg. 2010): 2.070 kr./klst.

17 ára (árg. 2009): 2.611 kr./klst.

Laun eru greidd út í lok mánaðar og eru lögð inn á bankareikning sem skal vera skráður á kennitölu nemanda.


Veikindi og frí

Mögulegt er að fá leyfi frá störfum en nemendum gefst ekki kostur á að vinna upp tapaðan starfstíma síðar.

Veikindi þarf forsjáraðili að tilkynna til verkstjóra, en upplýsingar um netfang og símanúmer er að finna í svarbréfi vinnuskólans á Mínum síðum. Veikindadagar eru ekki greiddir. 


Reglur vinnuskóla Múlaþings

Öllum nemendum og flokkstjórum ber að sýna samstarfsfólki sínum og öllum íbúum og gestum sveitarfélagsins fyllstu kurteisi og tillitssemi.

Niðurlægjandi orðbragð, hegðun og ofbeldi af hverju tagi er algjörlega ólíðandi.

Flokkstjóri er verkstjóri yfir þeim verkefnum sem hans flokki eru falin og skulu nemendur fylgja fyrirmælum hans.

Öllum nemendum og flokkstjórum ber að mæta stundvíslega.

Nemendur og flokkstjórar beri virðingu fyrir starfinu, gangi vel um og fari vel með verkfæri og eigur. Nemendur bera viðeigandi kostnað ef þeir fremja skemmdarverk á eigum Vinnuskólans og annarra.

Flokkstjórar ákveða hvaða nemendur vinna saman.

Nemendur og flokkstjórar mæta til vinnu klæddir eftir veðri.

Nemendur og flokkstjórar klæðast vestum á meðan á vinnu stendur ásamt viðeigandi persónuhlífum.

Ekki er leyfilegt að yfirgefa vinnusvæði á kaffitíma, nemendur mæti með nesti í vinnuna. Sjoppu- og búðaferðir eru ekki leyfðar á vinnutíma, þ.m.t. kaffitíma.

Ekki er leyfilegt að vera með orku- og gosdrykki á vinnutíma.

Nemendur bera ábyrgð á öllum eigum sínum á vinnutíma.

Farsímanotkun er óheimil nema með samþykki flokkstjóra.

Öll notkun tóbaks, rafretta, nikótínpúða og annarra vímuefna er bönnuð á vinnutíma, þ.m.t. í kaffitímum.

Verði misbrestur á að nemandi fylgi reglum Vinnuskólans er viðkomandi áminntur eða honum vísað úr skólanum, tímabundið eða varanlega, eftir eðli brots. Forsjáraðili er ávallt látinn vita ef nemanda er vísað úr Vinnuskólanum. Eingöngu verkstjóri og yfirmenn hans geta vísað nemanda varanlega úr Vinnuskólanum.

Nemendur eru stimpluð inn við upphaf vinnu, séu þau mætt til vinnu, og stimpluð út í hádegishléi og við lok vinnudags.
Nemendur fá greitt samkvæmt stimpilklukku og fá því ekki greitt þann tíma sem þau ekki eru í vinnu, t.d. vegna seinkoma.

Flokkstjóri er verkstjóri á vinnustað og næsti yfirmaður hans er verkstjóri Vinnuskóla á viðkomandi stað.

Síðast uppfært 16. apríl 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?