Fara í efni

Farsæld barna

Farsæld barna felur í sér að skapa barni skilyrði til að ná líkamlegum, sálrænum, vitsmunalegum, siðferðislegum og félagslegum þroska og heilsu á eigin forsendum til framtíðar. Útgangspunkturinn í öllu sem við gerum er barnið og hagsmunir þess.


Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, einnig þekkt sem farsældarlög, er ætlað að tryggja snemmtækan stuðning og tryggja samvinnu allra sem koma að velferð barna, fækka alvarlegum málum og bæta þjónustu við börn og fjölskyldur. Lögin ná til allrar þjónustu sem veitt er innan skóla- og heilbrigðiskerfisins, auk félagsþjónustu og lögreglu.

Aðilar sem koma að málefnum barna bera ábyrgð á að:

  • Fylgjast með velferð og farsæld barna og foreldra, og meta hvort þörf sé á þjónustu.
  • Bregðast við þegar þörf er á þjónustu, á skilvirkan hátt.
  • Hafa samráð sín á milli til að tryggja samfellu og samþættingu þjónustu í þágu velferðar og farsældar barna og foreldra.

Stigskipting þjónustunnar

  1. Fyrsta stig: Grunnþjónusta sem er aðgengileg öllum börnum og foreldrum. Markmið að styðja við farsæld barns.
  2. Annað stig: Úrræði þar sem veittur er einstaklingsbundinn og markvissari stuðningur. Markmið að tryggja farsæld barns.
  3. Þriðja stig: Úrræði þar sem veittur er einstaklingsbundinn og sérhæfðari stuðningur. Markmið að tryggja að farsæld barns verði ekki hætta búin.

Tengiliður

Öll börn og foreldrar skulu hafa aðgang að tengilið eftir því sem þörf krefur. Á meðgöngu og á ungbarnaskeiði er tengi­liður barns starfsmaður heilsugæslu, í leik- grunn- eða framhaldsskóla er starfs­maður ­skólans. Ungmenni sem ekki fara í framhalds­skóla eða börn sem á einhvern hátt falla á milli ofan­greindra þjónustukerfa hafa aðgang að tengilið hjá félags­þjónustu sveitar­félags.
Tengiliður hefur viðeigandi þekkingu til að geta verið foreldrum og barni innan handar. Hann ráðleggur þeim og aðstoðar við að rata í gegnum kerfið og sækja þjónustu við hæfi.

Tengiliðir HSA

Upplýsingar um tengiliði er á vefsíðu stofnunarinnar  

Tengiliðir leikskóla

Bjarkatún - Hugrún Malmquist Jónsdóttir, hugrun.malmquist@mulathing.is

Leikskóladeild Brúarásskóli - Alda Björg Lárusdóttir, alda.larusdottir@mulathing.is 

Leikskóladeild Seyðisfjarðarskóla - Þórunn Hrund Óladóttir, thorunn.oladottir@mulathing.is

Glaumbær - Jóna Björg Sveinsdóttir, jona.sveinsdottir@mulathing.is

Hádegishöfði - Guðmunda Vala Jónasdóttir, vala.jonasdottir@mulathing.is 

Tjarnarskógur - Rósa Dóra Sigurðardóttir, rosa.sigurdardottir@mulathing.is

Tengiliðir grunnskóla 

Borgarfjarðarskóli - Jóna Björg Sveinsdóttir, jona.sveinsdottir@mulathing.is

Brúarásskóli - Alda Björg Lárusdóttir, alda.larusdottir@mulathing.is 

Egilsstaðaskóli - Ingunn Heiðdís Yngvadóttir, ingunn.h.yngvadottir@mulathing.is og Hlín Stefánsdóttir hlin.stefansdottir@mulathing.is 

Djúpavogsskóli - Ingibjörg Bára Gunnlaugsdóttir ingibjorg.gunnlaugsdottir@mulathing.is

Fellaskóli - Helena Rós Einarsdóttir helena.einarsdottir@mulathing.is

Seyðisfjarðarskóli - Svava Lárusdóttir svava.larusdottir@mulathing.is

Tengiliðir framhaldsskóla

Menntaskólinn á Egilsstöðum - upplýsingar um tengiliði er á vefsíðu skólans

Málstjóri

Ef barn þarf fjölþætta þjónustu á öðru og/eða þriðja stigi er tilnefndur mál­stjóri. Málstjórar eru að jafnaði starfsfólk félags­­þjónustu sveitarfélaga. Hlutverk málstjóra er meðal annars að veita ráðgjöf og upplýsingar um þjónustu, bera ábyrgð á gerð stuðningsáætlunar og stýra stuðnings­teymi.
Málstjóri hefur hagsmuni barnsins ávallt að leiðarljósi og rækir hlutverk sitt í samráði við foreldra og barn. 


Innleiðing farsældar

Nánari upplýsingar um innleiðingu farsældar barna er að finna á vefnum

Verkefnastjóri innleiðingar er Rannveig Hrönn Friðriksdóttir.

Hér má sjá glærur eftir kynningarfundi fyrir foreldra.


Eyðublöð vegna farsældar barna

Síðast uppfært 07. apríl 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?