Fundargerð 8. fundur í hafnarmálaráði Seyðisfjarðar 2018
Þriðjudaginn 13. nóvember 2018 kemur hafnarmálaráð Seyðisfjarðarkaupstaðar saman til fundar á skrifstofu kaupstaðarins að Hafnargötu 44. Hefst fundurinn kl. 20:00.
Fundinn sátu:
Þórunn Hrund Óladóttir formaður L-lista,
Guðjón Már Jónsson L-lista,
Oddný Björk Daníelsdóttir D- lista,
Aðalheiður Borgþórsdóttir hafnarstjóri.
Unnar Sveinlaugsson, B – lista mætti ekki.
Fundargerð ritaði hafnarstjóri.
Gerðir fundarins:
1. Gjaldskrá 2019
Lögð fram drög að gjaldskrá fyrir höfnina fyrir árið 2019.
Hafnarmálaráð leggur svohljóðandi tillögu fyrir bæjarstjórn. „Bæjarstjórn Seyðisfjarðar samþykkir framlagða gjaldskrá Seyðisfjarðarhafnar fyrir árið 2019 til síðari umræðu í bæjarstjórn.“
2. Fjárhagsáætlun 2019-2022.
Hafnarmálaráð leggur eftirfarandi tillögu fyrir bæjarstjórn. „Bæjarstjórn Seyðisfjarðar samþykkir framlagða fjárhagsáætlun Seyðisfjarðarhafnar fyrir árið 2019 til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Fundargerð á 2 bls.