Fara í efni

Byggðastofnun auglýsir eftir tilnefningum um handhafa Landstólpans 2024

02.02.2024 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Byggðastofnun hefur auglýst eftir tilnefningum um handhafa Landstólpans 2024.

Landstólpinn er samfélagsviðurkenning sem Byggðastofnun veitir árlega á ársfundi sínum. Um er að ræða hvatningarverðlaun til einstaklinga, fyrirtækja, hópa eða verkefna sem vakið hafa athygli á byggðamálum, styrkt samfélög í landsbyggðunum eða stuðlað að framgangi málefna landsbyggðanna, ýmist í heild eða innan tiltekins byggðarlags, svo sem innan nýsköpunar, byggðaþróunar, atvinnuþróunar, sjálfbærni eða menningar.

Hafa má í huga hvort viðkomandi einstaklingur, hópur, fyrirtæki eða verkefni hafi:

  • Stuðlað að jákvæðri og sterkri ímynd landsbyggðanna eða tiltekins svæðis
  • Vakið athygli og aukið umfjöllun um ákveðið svæði eða málefni innan landsbyggðanna
  • Styrkt nærumhverfið, ýmist með aukinni samstöðu íbúa, atvinnutækifærum, aukinni afþreyingu, menningu, þjónustu, verðmætasköpun eða tækifærum af öðru tagi
  • Aukið virkni íbúa og fengið þá til beinnar þátttöku í verkefninu
  • Stuðlað að jákvæðum áhrifum efnahags-, samfélags- og/eða umhverfislegra þátta

Ekki er nauðsynlegt að öllum þessum atriðum sé fylgt eftir, heldur séu þau höfð til hliðsjónar. Nauðsynlegt er að rökstuðningur fylgi tilnefningunni.
Viðurkenningunni fylgir listmunur hannaður af íslenskum listamanni. Verðlaunafé að upphæð kr. 1.000.000.- fylgir einnig viðurkenningunni.

Óskað er eftir því að tillögur verði sendar á eftirfarandi netföng: helga@byggdastofnun.is og/eða andri@byggdastofnun.is.

Nánari upplýsingar veita Helga Harðardóttir eða Andri Þór Árnason í síma 455-5400.
Frestur til að skila inn tilnefningum rennur út 1. mars.

Byggðastofnun auglýsir eftir tilnefningum um handhafa Landstólpans 2024
Getum við bætt efni þessarar síðu?