Fara í efni

Íbúafundur á Djúpavogi

24.04.2023 Fréttir Djúpivogur

Heimastjórnin á Djúpavogi verður með íbúafund í Löngubúð fimmtudaginn 27. apríl næstkomandi klukkan 17:00-19:00.
Þar munu fulltrúar í heimastjórn sitja fyrir svörum og spjalla við íbúa sem eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum. Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar.

Heimastjórnin á Djúpavogi.

Íbúafundur á Djúpavogi
Getum við bætt efni þessarar síðu?