Fara í efni

Klippikort – hækka í verði um áramót

18.12.2023 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Athygli er vakin á að ný gjaldskrá sorpmála hefur verið samþykkt í sveitarstjórn sem mun taka gildi um áramótin. Klippikortin munu því hækka í verði. Hvetjum við alla þá sem hafa hug á að kaupa sér ný klippikort að nýta sér að kaupa þau á gamla verðinu fram að áramótum.

Hægt er að kaupa klippikort á öllum afgreiðslustöðvum sem og móttökustöðvum Múlaþings.

  • Stórt kort kostar 25.000 kr. en 38.500 kr. eftir áramót.
  • Lítið kort kostar 8.000 kr. en 9.600 kr. eftir áramót.

Eldri kort gilda áfram.

Klippikort – hækka í verði um áramót
Getum við bætt efni þessarar síðu?