Fara í efni

Lumar þú á hugmynd að samfélagsverkefni

30.01.2024 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Í annað skiptið er nú óskað eftir hugmyndum að samfélagsverkefnum frá íbúum Múlaþings, sem heimastjórnirnar fjórar meta og gera síðan tillögur um, til framkvæmda- og umhverfissviðs, til framkvæmda. Sem dæmi um slík verkefni má nefna stígagerð, leiktæki, fræðslu- og upplýsingaskilti, hvíldarbekkur og svo framvegis.

Eins og í fyrra er heildarupphæð til framkvæmda fyrir þessi verkefni 10 milljónir, sem skiptast þannig að 2 milljónir eru til framkvæmda á Borgarfirði, 2 milljónir á Djúpavogi, 2 milljónir á Seyðisfirði og 4 milljónir á Fljótsdalshéraði.

Hægt er að senda tillögur að hugmyndum í gegnum eftirfarandi vefsíðu, eða á netföng fulltrúa sveitarstjóra á Borgarfirði, á Djúpavogi, á Fljótsdalshéraði og á Seyðisfirði.

Mikilvægt er að hugmyndunum sem sendar eru, sé lýst eins vel og mögulegt er. Ljósmyndir af sambærilegum verkefnum, tillaga að staðsetningu, áætlun um kostnað og aðrar viðeigandi upplýsingar til útskýringar og útfærslu á hugmyndinni er gott að senda með. Rétt er að hafa í huga að ekki er víst að hægt sé að framkvæma allar þær hugmyndir sem berast. Einnig geta hugmyndir verið útfærðar og framkvæmdar með öðrum hætti en hugmyndasmiður leggur til.

Frestur til að skila inn hugmyndum að þessum verkefnum er til 28. febrúar. Gert er ráð fyrir að heimastjórnir taki hugmyndirnar sem berast fyrir á fundi sínum í byrjun mars og munu í framhaldinu skila sínum tillögum til framkvæmda- og umhverfissviðs.

Í fyrra voru eftirfarandi verkefni, sem hugmyndir bárust um frá íbúum, framkvæmd eða eru í vinnslu:

  • Keyptur og settur upp leikkastali í Blánni á Djúpavogi.
  • Sett upp æfingatæki í Selskógi á Egilsstöðum og keypt rennibraut við Hjaltalund sem gengið verður frá í sumar.
  • Keypt og sett upp æfingatæki við strandblakvöll á Seyðisfirði.
  • Keypt róla á Vinaminnisplan á Borgarfirði eystra sem gengið verður frá í sumar.

 

SENDA HUGMYND

Lumar þú á hugmynd að samfélagsverkefni
Getum við bætt efni þessarar síðu?