Fara í efni

Styrkir til íþrótta – og tómstundastarfs

06.02.2024 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Múlaþing auglýsir til umsóknar styrki til íþrótta- og tómstundastarfs með umsóknarfrest til og með 15. mars 2024.

Veittir eru styrkir til einstaklinga, hópa, félagssamtaka, fyrirtækja og stofnana til íþrótta- og tómstundatengdra verkefna.

Afgreiðsla styrkumsókna mun liggja fyrir í byrjun apríl 2024. Styrkir eru einungis greiddir út á því ári sem þeir eru veittir og færast ekki á milli ára nema sérstaklega sé um það samið. Næst verður auglýst í september, með umsóknarfrest til 15. október 2024.

Umsækjendur er hvattir til að kynna sér reglur um úthlutun íþrótta- og tómstundastyrkja fjölskylduráðs, sótt er um styrkinn rafrænt umsókn um íþrótta- og tómstundastyrk.

Styrkir til íþrótta – og tómstundastarfs
Getum við bætt efni þessarar síðu?