Fara í efni

Sumarfrístund á Djúpavogi

17.05.2022 Fréttir Djúpivogur

Í sumar stendur Múlaþing fyrir sumarfrístund á Djúpavogi í júní til júlí.

Verður áhersla sumarfrístundar að venju á útivist, hreyfingu og gleði. Meðal þess sem gert er í sumarfrístund eru leikir, gönguferðir, hjólaferðir, sundferðir, íþróttir, föndur og fleira.

Forstöðuaðili á Djúpavogi verður Kolbrún Ósk Austmann.

Sumarfrístund á Djúpavogi stendur yfir frá 13. júní til 8. júlí fyrir börn fædd 2013 – 2015 (sem voru að ljúka 1.-3. bekk).

 

Verður frístund starfrækt mánudaga – föstudaga kl. 9:00 – 12:00 eða 9:00 –14:00.

Greitt er fyrir allt tímabilið en hægt er að velja um að skrá fyrir hádegi eða heilan dag. Innifalið í gjaldi er, auk skipulagðs frístundastarfs, ávaxtatími fyrir og eftir hádegi og hádegismatur fyrir þau sem eru heilan dag.

 

Verð fyrir fyrra tímabilið er 65.000 kr. (heill dagur) og 25.000 kr. (hálfur dagur) ef skráð er fyrir 30. maí. 85.000 kr. (heill dagur) og 35.000 kr. (hálfur dagur) ef skráð er seinna.

 

Lokafrestur til að skrá í Sumarfrístund á Djúpavogi er annars vegar 30. maí (ódýrari skráning) og hins vegar 6. júní 2022. Skráning verður í gegnum Völu: sumar.vala.is.

Nánari upplýsingar á póstfanginu sumarfristund.djupivogur@mulathing.is.

Sumarfrístund á Djúpavogi
Getum við bætt efni þessarar síðu?