Fara í efni

Jólamarkaður Jólakattarins

11.12.2023 Fréttir Egilsstaðir

Jólamarkaður Jólakattarins verður haldin í 16 sinn í ár. Að þessu sinni verður hann haldinn í Landsnetshúsinu ( áður versluninni Vaskur), laugardaginn 16. desember klukkan 11:00–16:00.

Að Jólakettinum standa Félag skógarbænda á Austurlandi og Skógræktin á Hallormsstað. Upphaf að Jólakettinum var þegar Gróðrastöðin Barri fór að selja jólatré og hafði einn markaðsdag á laugardegi, síðan hefur jólamarkaðurinn stækkað ár frá ári.

Í ár eru yfir 50 söluaðilar en þar má finna jólatré, mikið úrval af handverki. Ýmiskonar matvara til dæmis hangikjet, skata, saltfiskur og kökur, jólabækurnar, ullarband og ekki má gleyma jólakertunum.
Að sjálfsögðu verða skógarbændur með ketilkaffi og Kvenfélagið í Hróarstungu með sínar ómissandi vöfflur og kakó.

Jólamarkaður Jólakattarins
Getum við bætt efni þessarar síðu?