Fara í efni

Laust starf á umhverfis- og framkvæmdasviði

06.12.2023 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Umhverfis- og framkvæmdasvið leitar að öflugum einstaklingi í starf verkefnastjóra framkvæmdamála. Um er að ræða 100% framtíðarstarf en æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Helstu verkefni verkefnastjóra framkvæmdamála eru:

  • Utanumhald um byggingar og mannvirki í eigu sveitarfélagsins.
  • Gerð viðhaldsáætlana og umsjón með viðhaldi.
  • Samskipti við forstöðumenn stofnana, úttektaraðila og leigjendur.
  • Nýframkvæmdir í byggingum og gatnagerð.
  • Umsjón með gerð kostnaðar- og framkvæmdaáætlana og útboðsgagna.
  • Samskipti við hönnuði og verktaka, sitja verkfundi og fundi í byggingarnefndum.
  • Árlegar úttektir og úttektir við leigjandaskipti.

Nánari upplýsingar og umsókn um starfið má finna á starfasíðu sveitarfélagsins hjá Alfreð:  Verkefnastjóri framkvæmdamála | Umhverfis-og framkvæmdasvið (alfred.is).

Laust starf á umhverfis- og framkvæmdasviði
Getum við bætt efni þessarar síðu?