Fara í efni

Leitin að ævintýraheimum – sumarlestur

13.06.2023 Fréttir Egilsstaðir

Leitin að ævintýraheimum - sumarlestur fyrir 6-12 ára börn hefst miðvikudaginn 14. júní á Bókasafni Héraðsbúa. Skráning og afhending á ævintýrakorti fer fram á opnunartíma safnsins, virka daga klukkan 13-18. Mikilvægt er að foreldrar / forráðamenn komi með ef stofna þarf bókasafnskort.

Í tilefni þess að sumarlesturinn er að hefjast bjóðum við börnum að búa til bókamerki á bókasafninu sama dag frá klukkan 13-16. Allt efni er á staðnum og ókeypis en auðvitað er frjálst að koma með eigin liti.

Hlökkum til að sjá ykkur á Bókasafni Héraðsbúa.

Leitin að ævintýraheimum – sumarlestur
Getum við bætt efni þessarar síðu?