Fara í efni

Líf og fjör á Minjasafni Austurlands í desember

16.12.2022 Fréttir Egilsstaðir

Það hefur verið líf og fjör á Minjasafni Austurlands í desember en yfir 220 grunnskólanemendur hafa heimsótt safnið undanfarna daga í skipulögðum jólaheimsóknum. Flestir hafa nemendurnir verið af yngsta stigi og var þeim boðið upp á fræðslu um jólasveinana þrettán með áherslu á þá gripi og athafnir sem þeir draga nöfn sín af eða höfðu sérstakan áhuga á samkvæmt jólasveinavísum Jóhannesar úr Kötlum. Í gegnum það varð til skemmtilegt spjall um líf fólks í gamla daga, matarhefðir, athafnir og hluti sem þá voru í daglegri notkun en fá þekkja í dag. Nemendur af miðstigi heimsóttu einnig safnið og varð þeim boðið upp á notalega sögustund í rökkrinu þar sem rætt var um þjóðsögur sem tengjast jólunum og álfa, tröll og vættir sem þá fara stundum á kreik. Þá var gestunum boðið að kíkja inn í Grýluhellinn sem birtist í sýningarsal safnsins í byrjun aðventunnar.

Elsa Guðný Björgvinsdóttir safnstjóri segir að kennarar séu almennt mjög duglegir að nýta sér safnið og fræðslutilboð þess í kennslu en það sé alltaf sérstaklega gestkvæmt í desember. „Við myndum gjarnan vilja að fleiri skólar gætu nýtt sér safnið en eðli málsins samkvæmt eru það helst skólarnir næst okkur sem geta komið. Til að koma til móts við hina skólana bjóðum við til dæmis upp á fræðsluefni á vefnum okkar sem kennarar geta nýtt heima í skólastofunni auk þess sem við höfum einnig boðið skólunum að við mætum með ákveðin fræðsluverkefni til þeirra.”

Það sem af er ári hafa í kringum 670 nemendur af öllum skólastigum heimsótt safnið í skipulögðum skólaheimsóknum eða tekið þátt í fræðsluverkefnum sem safnið hefur boðið upp á í skólunum. Þar fyrir utan hefur safnið staðið fyrir nokkrum opnum smiðjum og viðburðum fyrir börn og fjölskyldur þeirra, til dæmis jólasamveru í desember í samstarfi við Bókasafn Héraðsbúa þar sem yfir 100 manns mættu og fór í ratleiki, föndruðu, skreyttu kerti og fleira.

Líf og fjör á Minjasafni Austurlands í desember
Getum við bætt efni þessarar síðu?