Fara í efni

Nýr Grænfáni og nýr umhverfissáttmáli í Brúarási

30.06.2022 Fréttir Egilsstaðir

Brúarásskóli á Fljótsdalshéraði fékk nú í vor afhentan nýjan Grænfána fyrir framúrskarandi frammistöðu í Grænfánaverkefninu svokallaða. Við skólaslit Brúarásskóla var nýr umhverfissáttmáli skólans kynntur af nemendum skólans með pompi og prakt og í kjölfarið flutti Guðrún Schmidt starfsmaður Landverndar á Austurlandi ávarp og afhenti skólanum nýjan Grænfána. Umhverfissáttmáli er síðasta skrefið af sjö sem skólar á grænni grein geta tekið í Grænfánaverkefninu en þeim áfanga náði skólinn fyrir margt löngu en nú var kominn tími til að endurnýja hann.
Um 20 ár eru síðan Grænfánaverkefnið hóf göngu sína á Austurlandi og Brúaráskóli var einn af fyrstu skólunum til að hefja þátttöku í verkefninu. Umhverfissáttmálin er loforð til Jarðarinnar sem nemendur og starfsfólk koma sér saman um. 

Nýr Grænfáni og nýr umhverfissáttmáli í Brúarási
Getum við bætt efni þessarar síðu?