Fara í efni

Umsóknir til menningarstarfs 2022 opna

12.08.2022 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Byggðarráð Múlaþings auglýsir til umsóknar styrki til menningarstarfs á árinu 2022 með umsóknarfresti til og með 8. September 2022.

Múlaþing veitir menningarstyrki til einstaklinga, hópa, félagssamtaka, fyrirtækja og stofnana til almennrar liststarfsemi, viðburða eða verkefna. Umsækjendur skulu tengjast Múlaþingi með búsetu, með því að viðburðurinn fari fram í Múlaþingi eða feli í sér kynningu á menningarstarfsemi Múlaþings.

Stefnt er að því að afgreiðsla styrkumsókna liggi fyrir í lok september 2022.

Sótt er um styrk með rafrænum hætti á Íbúagátt sveitarfélagsins og fer innskráning þar fram með rafrænum skilríkjum eða Íslykli.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglur um úthlutun menningarstyrkja Múlaþings á heimasíðu sveitarfélagsins.

Athugið að breyting hefur orðið á úthlutunarferlinu um menningarstyrki og verða skyndistyrkir ekki afgreiddir. Þetta er seinni úthlutun á árinu 2022. Umsóknarferli fyrir úthlutun 2023 mun hefjast í nóvember.

Upplýsingar og ráðgjöf veitir Heiðdís Hólm Guðmundsdóttir verkefnastjóri menningarmála á heiddis.gudmundsdottir@mulathing.is

 

City Executive Board of Múlaþing calls for applications for cultural project grants for 2022. Application deadline is September 8th, 2022.

Múlaþing cultural grant is intended for individuals, groups, associations, companies and institutions for artistic activities, events, or projects. Applicants must be connected to Múlaþing in some way, either through residence, that the event takes place at Múlaþing or includes a promotion for Múlaþing‘s cultural activities.

Grant applications will be processed by the end of September 2022.

To apply please use the municipalities Resident Portal (Mínar síður), and login with Electronic ID or Íslykill.

Applicants are encouraged to familiarise themselves with the rules of Múlaþing‘s cultural grants on the municipality‘s website.

Please note that there has been a change in the allocation process for cultural grants, immediate grants outside of the grant deadline will not be processed. This is the second allocation this year (2022) and the application process for the 2023 allocation will start in November.

For further information or advice please contact Heiðdís Hólm Guðmundsdóttir cultural project manager at heiddis.gudmundsdottir@mulathing.is

Umsóknir til menningarstarfs 2022 opna
Getum við bætt efni þessarar síðu?