Fara í efni

Verndarsvæði í byggð á Egilsstöðum

10.11.2021 Fréttir Egilsstaðir

Sveitarstjórn Múlaþings hefur samþykkt að kynna drög að tillögu um verndarsvæði í byggð á Egilsstöðum. Svæðið sem um ræðir er á ásnum norðan Fagradalsbrautar á milli Tjarnarbrautar að hluta og Lagaráss að hluta, við götuna Selás að hluta og götuna Laufás alla. Markmið laga nr. 87/2015 um verndarsvæði í byggð er að stuðla að vernd og varðveislu byggðar sem hefur sögulegt gildi.

Kynning á verkefninu var send út á facebook síðu Múlaþings 4. nóvember kl. 17 en upptaka er aðgengileg þar áfram.

Sýning á verkefninu mun hanga uppi næstu vikurnar í Safnahúsinu á Egilsstöðum en auk þess verður hægt að kynna sér efni hennar hér á heimasíðunni. Um er að ræða húsakönnun og fornleifaskrá ásamt tillögu og greinagerð um verndarsvæði í byggð. Plakötin sem hanga uppi í Safnahúsinu eru aðgengileg hér.

Almenningi er gefinn kostur á að senda inn athugasemdir og/eða ábendingar til skipulagsfulltrúa Múlaþings Lyngási 12, 700 Egilstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 18. nóvember 2021.

 

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

 

Mörk svæðisins
Mörk svæðisins
Getum við bætt efni þessarar síðu?