Fara í efni

Aflétting á öllum rýmingum á Seyðisfirði

20.09.2023 Fréttir Aurskriður á Seyðisfirði Seyðisfjörður

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi hefur ákveðið að fara niður á óvissustig Almannavarna. Farið var á hættustig Almannavarna síðastliðinn mánudag vegna mikilla rigninga á Austfjörðum. Eins og fram kom í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi þá hefur verið ákveðið að aflétta öllum rýmingum á Seyðisfirði sem hefur staðið yfir frá því á mánudag. Sjá tilkynningu á Facebooksíðu Lögreglunnar á Austurlandi.

Aflétting á öllum rýmingum á Seyðisfirði
Getum við bætt efni þessarar síðu?