Fara í efni

Dagar myrkurs

28.11.2023 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Dagar myrkurs fóru vel fram þetta árið og þátttaka almennt góð.

Hrekkjavakan er orðin órjúfanlegur þáttur af Dögum myrkurs og æ fleiri taka þátt í „grikk eða gott“ þar sem börn á öllum aldri sníkja nammi af nágrönnum. Hina árlegu ljósmyndakeppni vann Jón Einar Ágústsson sem sendi inn fallega mynd frá Djúpavogi.

Fjölmargir viðburðir fóru fram og er til eftirbreytni hvernig sumir byggðarkjarnar setja saman heildardagskrá og ná þannig að hámarka samveruna, gleðina og sköpunarkraftinn í fjölbreyttum viðburðum fyrir alla aldurshópa. Ljósmyndakeppnin var haldin að venju og voru átta ljósmyndarar sem sendu inn 54 myndir. Sigurvegarinn í ár var Jón Einar Ágústsson frá Djúpavogi sem sendi inn fallega mynd af gamla læknabústaðnum á Djúpavogi, Dölum, þar sem ljós og skuggar leika sér í fullkominni litardýrð.

Nú fer að koma að endurskoðun á aðgerðaráætlun fyrir Daga myrkurs en sú áætlun sem unnið hefur verið eftir fram til þessa rennur út í lok þessa árs. Til að fá fram skoðanir og hugmyndir íbúa Austurlands er hér meðfylgjandi könnum sem vonast er til að sem flestir sjái sér fært um að svara.

 

Könnun á íslensku

Könnun á ensku

Dagar myrkurs
Getum við bætt efni þessarar síðu?