Fara í efni

Hafnargata 42 B og Hafnargata 44 B til sölu

05.12.2023 Fréttir Tilkynningar Seyðisfjörður

Múlaþing óskar eftir tilboðum í eignirnar Hafnargötu 42 B og Sólbakka að Hafnargötu 44 B á Seyðisfirði.

Hafnargata 42 B er einlyft timburhús á steyptum kjallara byggt árið 1925.
Stærð húss er 57 m2 að grunnfleti.

Sólbakki, Hafnargata 44 B, er einlyft timburhús á steyptum kjallara byggt árið 1893/1916.
Stærð húss er 80 m2 að grunnfleti.

Sú kvöð fylgir sölu húsanna að þau verði annað hvort flutt af lóðinni eða notkun þeirra verði breytt úr íbúðarhúsnæði í atvinnuhúsnæði. Múlaþing bíður nýjum eiganda lóð fyrir húsin við Oddagötu, 3,4 eða 5.

Kjósi kaupandi að flytja húsin verður honum úthlutað lóð miðað við gildandi reglur um úthlutun lóða hjá Múlaþingi, að því frátöldu að lóðarúthlutunargjald og gatnagerðargjöld verða felld niður.

Kaupandi skal standa skil á öðrum gjöldum skv. gjaldskrá skipulags- og byggingarmála s.s. niðurrifs- og byggingaleyfisgjöldum.

Gerð er sú krafa á kaupendur að þeir ljúki frágangi á lóðunum Hafnargötu 42 B og 44 B og skili þeim án mannvirkja og sléttaðri innan tveggja ára frá kaupsamningi.

Kjósi kaupandi að breyta notkun húsanna þannig að þau verði atvinnuhúsnæði skal hann standa skil á gjöldum skv. gjaldskrá skipulags- og byggingarmála s.s byggingaleyfisgjöld vegna breytinga á húsnæði.

 

 

Tilboðum skal skila á netfangið utbod@mulathing.is fyrir kl. 14:00 þann 5. janúar 2024. Jafnframt er hægt að óska eftir frekari upplýsingum á sama netfangi.

 

Múlaþing áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Vakin er athygli á því að Múlaþing kann að kalla eftir frekari gögnum eftir opnun tilboða ef þörf er á. Koma skal skýrt fram í tilboðum í hvort húsið verið er að gera tilboð.

Hægt er að fá að skoða eignirnar og skal hafa samband við skrifstofu Múlaþings á Seyðisfirði með óskir um slíkt.

Hafnargata 42 B og Hafnargata 44 B til sölu
Getum við bætt efni þessarar síðu?