Fara í efni

Kynning á umhverfismatsskýrslu Fjarðarheiðarganga

19.06.2022 Fréttir Egilsstaðir Seyðisfjörður

Vegagerðin verður með opið hús í tengslum við kynningartíma umhverfismatsskýrslu Fjarðarheiðarganga. Opnu húsin verða á eftirfarandi stöðum: Félagsheimilinu Herðubreið, Seyðisfirði, 21. júní frá klukkan 14 til 18 og í Egilsstaðaskóla 22. júní frá klukkan 14 til 18.

Umhverfismatsskýrsla Fjarðarheiðarganga er nú í kynningu hjá Skipulagsstofnun. Öllum er velkomið að senda inn umsagnir um umhverfismatið og er frestur til þess til 5. júlí 2022. Umsagnir skulu berast til Skipulagsstofnunar.

Tilgangur með opnum húsum er að vekja athygli á kynningartímanum sem nú er í gangi, hvetja fólk til að kynna sér niðurstöður umhverfismatsins og koma með ábendingar. Upplýsingar um framkvæmdina og helstu niðurstöður umhverfismatsins munu liggja frammi og verða fulltrúar frá Vegagerðinni, hönnunar-, og umhverfismatsteymi á staðnum til að svara fyrirspurnum.

Hægt er að nálgast umhverfismatsskýrsluna á heimasíðu Vegagerðarinnar; Fjarðarheiðargöng – mat á umhverfisáhrifum.

Tölvugerð mynd af gangamunna Seyðisfjarðarmegin.

Mynd fengin af heimasíðu Veðurstofu Íslands.
Tölvugerð mynd af gangamunna Seyðisfjarðarmegin.

Mynd fengin af heimasíðu Veðurstofu Íslands.
Getum við bætt efni þessarar síðu?