Fara í efni

Miðsumarnótt Festival

16.06.2023 Fréttir Seyðisfjörður

Skaftfell listamiðstöð og Skaftfell Bistro halda miðsumarnóttina hátíðlega á föstudaginn 23. júní frá klukkan 18–00. Hátíðin fer fram fyrir framan Skaftfell þar sem verður götuveisla með mat, tónlist, dansi og ljóðalestri ásamt götumarkaði með list, handverki og staðbundnum vörum. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin!

Þau sem vilja hafa borð á götumarkaðnum geta haft samband við Tessu hjá tessarivarola@gmail.com.
Fyrir nánari upplýsingar má skrifa til skaftfell@skaftfell.is eða hringja í síma 845-6017.

Miðsumarnótt Festival
Getum við bætt efni þessarar síðu?