Fara í efni

Óvissustig vegna snjóflóðahættu

12.02.2024 Fréttir Seyðisfjörður

Mikil úrkoma hefur mælst á Seyðisfirði í nótt, það snjóar í fjöll en bloti í snjónum í byggð. Hvöss A-ANA átt hefur verið á fjöllum síðan í gærkvöldi. Það á að draga úr úrkomu þegar líður á daginn og vind að hægja um leið og hann snýr sér til norðlægari áttar. Snjór er rakur á láglendi og ekki aðstæður fyrir þurr og hraðfara snjóflóð. Náið verður fylgst með aðstæðum og þróun í dag. 

Hægt er að fá frekari upplýsingar á heimasíðu Veðurstofu Íslands.

Óvissustig vegna snjóflóðahættu
Getum við bætt efni þessarar síðu?