Fara í efni

Sirkushópurinn Hringleikur leitar að ungmennum 15-18 ára

02.04.2024 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Sirkushópurinn Hringleikur leitar að ungmennum 15-18 ára til að taka þátt í götuleikhús sýningunni Sæskrímslin sem verður frumsýnt í Neskaupstað laugardaginn 15. júní klukkan 15:00.

Um 10 ungmenni eru fengin til liðs við verkið á hverjum sýningarstað og læra ákveðið hlutverk í sýningunni, ásamt því að fá innsýn í götuleikhústækni og uppsetningu sýninga. Í samstarfi við Múlaþing og Sláturhúsið leitum við að ungmennum úr Múlaþingi og víðar úr landshlutanum til að taka þátt í verkefninu.

Þátttakendur sem verða valin taka þátt í þriggja daga dagskrá dagana 13. - 15. júní sem samanstendur af götuleikhús smiðju, æfingum á verkinu og sýningunni sjálfri. Unnið er í mesta lagi 4 tíma á dag. Unnið verður í Sláturhúsinu á Egilsstöðum 13. júní, en á sýningarstað í Neskaupstað 14. og 15. júní.

Þátttakendur fá greiðslu að upphæð 20.000 kr. fyrir þátttökuna.

Hægt er að skrá sig hér.
Umsóknarfrestur er til 14. apríl en frekari upplýsingar má fá hjá Eyrúnu Ævarsdóttur í netfangið eyrun@hringleikur.is og Jóakim Meyvant Kvaran í netfangið joakim@hringleikur.is.

 

// English //

Hringleikur Circus Company is looking for young people aged 15-18 to participate in the street theatre performance "Sæskrímslin" which will be performed in Neskaupstaður on Saturday, June 15th at 15:00.

We will select 10 people to join the project for each performance, who will learn specific roles in the show, as well as gaining insight into street theatre techniques and production. The participants of Skapandi Sumarstörf in Fjarðabyggð will be part of the project on behalf of Fjarðabyggð. We are searching for young people from Múlaþing and beyond in the area to participate as well.

Selected participants will take part in a three-day program from June 13 -15th, consisting of street theatre and movement workshops, rehearsals for the performance, and the performance itself. Participants will work a maximum of 4 hours per day.

Participants will receive a payment of 20,000kr for their participation.

Please register here.
Applications are open until 14th. April and we’ll answer all applications.

If you have questions feel free to contact the artistic directors of the project: Eyrún Ævarsdóttir (eyrun@hringleikur.is) and Jóakim Meyvant Kvaran (joakim@hringleikur.is).

Sirkushópurinn Hringleikur leitar að ungmennum 15-18 ára
Getum við bætt efni þessarar síðu?