Fara í efni

Strandarvegi lokað vegna framkvæmda

02.12.2022 Fréttir Seyðisfjörður

Vegna framkvæmda við fiskimjölsverksmiðju SVN á Seyðisfirði verður Strandarvegi lokað frá svokölluðum Bragga að gömlu netagerðinni frá mánudeginum 5. desember til miðvikudagsins 7. desember, ef veður leyfir til framkvæmda.
Opnuð verður hjáleið niður á bryggju og í gegnum mjölskemmu bræðslunar sem yrði opnuð af vaktmanni fyrir þau sem eiga erindi út með firði. En óþarfa umferð er ekki leyfð þar sem hjáleiðin er um athafnasvæði verksmiðjunnar.

Strandarvegi lokað vegna framkvæmda
Getum við bætt efni þessarar síðu?