Fara í efni

Sumarfrístund á Egilsstöðum og Seyðisfirði 2022

09.05.2022 Fréttir Egilsstaðir Seyðisfjörður

Í sumar stendur Múlaþing fyrir sumarfrístund á Egilsstöðum og Seyðisfirði í júní, júlí og ágúst.

 

Áhersla sumarfrístundar verður að venju á útivist, hreyfingu og gleði. Meðal þess sem gert er í sumarfrístund eru leikir, gönguferðir, hjólaferðir, sundferðir, íþróttir, föndur og fleira.

Forstöðuaðilar á Egilsstöðum eru Árndís Birgitta Georgsdóttir og Rebekka Ýr Unnarsdóttir en á Seyðisfirði Elías Snær Önnuson Torfason.

Fyrra tímabil Sumarfrístundar á Egilsstöðum og Seyðisfirði er frá 9. júní til 8. júlí fyrir börn fædd 2013 – 2015 (sem voru að ljúka 1.-3. bekk).

Seinna tímabil er frá 2. – 17. ágúst á Egilsstðum og 2. - 19. ágúst á Seyðisfirði fyrir börn fædd 2013-2016 (verðandi 1.-4. bekk).

 

Frístund verður starfrækt mánudaga – föstudaga kl. 9:00 – 12:00, 13:00 – 16:00 eða 9:00 –16:00. Þá er hægt að kaupa viðbótarstund sérstaklega, en það er þá gæsla frá kl. 8:00 - 9:00 að morgni.

Greitt er fyrir allt tímabilið en hægt er að velja um að skrá fyrir eða eftir hádegi eða heilan dag. Innifalið í gjaldi er, auk skipulagðra frístunda, ávaxtatími fyrir og eftir hádegi og hádegismatur.

Sumarfrístund Egilsstaðir
Sumarfrístund Seyðisfjörður

Verð fyrir fyrra tímabilið er 65.000 kr. (heill dagur) og 25.000 kr. (hálfur dagur) ef skráð er fyrir 16. maí. 85.000 kr. (heill dagur) og 35.000 kr. (hálfur dagur) ef skráð er seinna. Verð fyrir seinna tímabilið er 35.000 kr. (heill dagur) og 15.000 kr. (hálfur dagur) ef skráð er fyrir 16. maí, 50.000 kr. (heill dagur) og 20.000 kr. (hálfur dagur) ef skráð er seinna.

Viðbótarstund er 20.000 kr. fyrir fyrra tímabil og 10.000 fyrir seinna tímabil.

 

Athugið að öll börn eiga rétt á að minnsta kosti 4 vikna samfelldu sumarleyfi.

 

Lokafrestur til að skrá í Sumarfrístund á Egilsstöðum og Seyðisfirði er annars vegar 16. maí (ódýrari skráning) og hins vegar 31. maí 2022. Skráning er í gegnum vefsíðuna sumar.vala.is og er opið fyrir skráningu.

 

Nánari upplýsingar á póstfanginu sumarfristund.egilsstadir@mulathing.is og sumarfristund.seydisfjordur@mulathing.is.

 

Upplýsingar um sumarfrístund á Djúpavogi eru væntanlegar um miðjan maí.

Sumarfrístund á Egilsstöðum og Seyðisfirði 2022
Getum við bætt efni þessarar síðu?