Fara í efni

Úrkoma á Seyðisfirði

16.11.2022 Fréttir Seyðisfjörður

Á meðan að úrkomutíð er á Austfjörðum verða daglegar fréttir um aðstæður á Seyðisfirði birtar fyrir hádegi á Bloggsíðu Veðurstofu Íslands þannig að íbúar geta fylgst með þróun mála. 

Úrkomulítið verður á Seyðisfirði í dag og fram á aðfaranótt föstudags. Grunnvatnsstaða lækkaði um helgina en hefur hækkað lítillega eftir úrkomuna síðasta sólarhring. Búast má við því að hún hækki eitthvað næsta sólarhring en ætti síðan að lækka í kjölfarið þar sem gera má ráð fyrir lítilli úrkomu fram á aðfaranótt föstudags eins og spáin er núna. Engar hreyfingar hafa sést á mælitækjum frá þvi 12. nóvember.

Íbúafundur var haldin á Seyðisfirði kl 16:30 í gær þar sem Veðurstofan fór yfir stöðu mála á svæðinu og ræddi viðbragðáætlanir. Hægt er að nálgast upptökur af fundinum á facebook síðu Múlaþings.

Hægt er að nálgast daglegar upplýsingar um aðstæður á Seyðisfirði á heimasíðu Veðurstofu Íslands.

Myndin vinstra megin sýnir hreyfingar síðustu 24 klst og myndin hægra megin sýnir hreyfingar síðustu…
Myndin vinstra megin sýnir hreyfingar síðustu 24 klst og myndin hægra megin sýnir hreyfingar síðustu 7 daga. Rauður litur táknar hreyfingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?